Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Alls konar íslenskt fyrir tónelska

Read Full Article →

Luigi, Maron Birnir – Berdreymi Ungstirnin Luigi og Maron Birnir hafa sent frá sér lagið Berdreymi sem er eftir þá félaga og Kristján G. Ómarsson Saenz og er á plötunni Leikurinn er leikurinn. Starri Snær Magnússon sá um hljóðblöndun. Undiraldan fimmtudaginn 28. maí Það er hressileg útgáfa þessa dagana og færri komast að en vilja í Undiröldunni þar sem var boðið upp á nýmeti frá Luigi ásamt Maron Birni, Nýdönsk, Hjálmum og mörgum fleirum. Izleifur – Kannski í öðru lífi Kannski í öðru lífi er nýjasta lagið frá Ízleifi og er að hans sögn mjög sumarlegt. Síðasta plata hans 100&einn sem hann gaf út fyrr á árinu hefur gengið vel og bar þar hæst lagið Hugsa alltof mikið um þig ásamt Elínu Hall sem hefur verið í góðri spilun í útvarpi og streymi. Ragnheiður Gröndal – Ég þakka Lagið Ég þakka var samið í covid, árið 2020, og er hugleiðing um þakklæti frá Ragnheiði Gröndal. Textinn fjallar um að þakka fyrir allt sem er og hugsa um einn dag í einu. Það er Ragnheiður sem syngur en Stefán Örn Gunnlaugsson og Guðmundur Pétursson léku undir. Biggi Maus & Memm – Vindurinn Vindurinn er fyrsta lagið af væntanlegri plötu hljómsveitarinnar Biggi Maus & Memm sem hefur starfað saman í tvö ár og áður gefið út tvær smáskífur. Lagið er gefið út af tilefni 50 ára afmælis Bigga Maus og hann segir textann vera leiðarvísi af hamingjunni. CeaseTone – Á tónaflóði Hafsteinn Þráinsson eða CeaseTone hefur sent frá sér lagið Á tónaflóði. Lagið semur hann sjálfur auk þess að syngja og spila á ýmis hljóðfæri en honum til aðstoðar við flutninginn voru Ómar Guðjónsson á stálgítar, Sigrún Harðardóttir á fiðlu og Magnús Jóhann á hljóðgervla. Árni Vilhjálmsson – Once a Week Once a Week er opnunarlag á plötunni Partly Cloudy frá Árna Vilhjálmssyni og fjallar um mann sem er reyna að rífa sig úr þægindarýminu sem sófinn í stofunni getur orðið. Hann er ringlaður og á það til að kenna öðrum um hvernig fyrir honum er komið. Hann er samt að leggja sig fram og sér glitta í ljósið út um stofugluggann sem gæti lokkað hann úr sófanum. Daníel Hjálmtýsson – Bite the Bullet Bite the Bullet er fimmta smáskífa Daníels Hjálmtýssonar af plötunni A Piece of Broken Glass, sem er væntanleg síðar á árinu. Lagið flytja þeir Daníel Hjálmtýsson, Hálfdán Árnason og Dagur Atlason og er það tuddalegasta frá sveitinni hingað til. Lagið reifar dystópísk þemu nútímasamfélags og særir fram ádeilu á efnishyggju og gróðafíkn í textagerð Daníels. Undiraldan þriðjudaginn 26. maí Það er hressileg útgáfa þessa dagana og færri komast að en vilja í Undiröldunni þar sem var boðið upp á nýmeti frá Luigi ásamt Maron Birni, Nýdönsk, Hjálmum og mörgum fleirum. Nýdönsk – Ekkert mál Hljómsveitin Nýdönsk sendi frá sér á föstudaginn nýtt lag sem heitir Ekkert mál og er innlegg þeirra í baráttuna til varnar íslenskunni sem á undir högg að sækja. Lagið var hljóðritað í Real World sumarið 2024 og átti að vera á hljómplötu sem hlaut nafnið Í raunheimum en lagið þótti ekki passa inni í heildarmynd plötunnar og var því sett í salt allt þar til núna. Hjálmar – Hvað gera fjöllin? Hjálmar hafa gefið út lagið Hvað gera fjöllin? sem er dansvænt diskó og fjallar um hvernig við mannfólkið eigum það til að flækja hlutina fyrir okkur og hafa óþarfa áhyggjur. Fjöllin virðast hins vegar ekki hafa áhyggjur og kippa sér yfirleitt lítið upp við breytingar sem verða í kringum þau. Dísa, Júlí Heiðar – Cha cha cha Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir hafa hljóðritað eigið lag og ljóð undir nafninu Júlí Heiðar og Dísa. Lagið er sumarlegt popplag sem heitir Cha cha cha en meðhöfundur þeirra er Pálmi Ragnar Ásgeirsson sem leikur líka á bassa og gítar. Kaktus Einarsson – Glycerine Lagið Glycerine er það fyrsta sem Kaktus Einarsson sendir frá sér af væntanlegri plötu sinni Factoid Happiness. Lagið og textinn er eftir Kaktus sem fær Thibault Gomez sér til aðstoðar við framleiðslu auk Alberts Finnbogasonar á gítar, Ólafs Björgvinssonar á trommur en Stephen Sedgwick hljóðblandaði. Anya Shaddock – Ég sver Tónlistarkonan og framleiðandinn Anya Shaddock hefur sent frá sér eigið lag og ljóð sem heitir Ég sver. Lagið sem er dansvænt popp verður að finna á væntanlegri plötu hennar S7undir hvað sem það svo þýðir þá kemur platan út á morgun, föstudag. Rebekka Blöndal og Ari Árelíus – Vofa Blús og jazzsöngkonan Rebekka Blöndal sendi frá sér breiðskífuna Kannski í gær en hún er plata vikunnar á Rás 2. Platan inniheldur níu lög, þar á meðal dúett þeirra Rebbekku og Ara Árelíusar: Vofa. Markús and the Diversion Sessions – Tear Away Á föstudaginn kemur út nýtt lag frá Markúsi and the Diversion Session sem heitir Tear Away en lagið er eftir sveitina sem er skipuð þeim Markúsi Bjarnasyni sem syngur og spilar á rafgítar, Helga Stefánssyni á bassa, Kjartan Bragi Bjarnason á trommur og Erni Inga Ágústssyni á rafgítar. Lagalisti Fimmunar

Share this article