Innlent | mbl | 9.9.2026 | 20:57 Kominn tími á þjóðarsátt Stefán Vagn Stefánsson í ræðustól á Alþingi í kvöld. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi „Þetta er nú meira ástandið“ Beint: Stefnuræða forsætisráðherra „Ein þjóð í einu landi“ „Nú blasir við verðbólguvetur“ Þykk þingmálaskrá en sumt vantar » Fleiri tengdar fréttir Stefán Vagn Stefánsson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, segir ríkisstjórnina ekki hafa staðið undir helstu markmiðum sínum í efnahagsmálum. Þetta kom fram í ræðu Stefáns á Alþingi fyrir skömmu en þar fara nú fram umræður um stefnuræðu forsætisráðherra. „Fyrir síðustu kosningar vantaði ekki loforðin og slagorðin. Flest af því hefur elst mjög illa svo vægt sé til orða tekið. Það átti að berja niður vexti og verðbólgu með sleggjunni frægu en viti menn, verðbólga er á uppleið, verðbólguvæntingar enn mjög háar og hækkuðu eftir framlagningu fjárlaga ríkisstjórnarinnar og vextir, já, virðulegur forseti, vextir hafa hækkað, hækkað og hækkað og standa nú í 8%,“ sagði Stefán Vagn. Hann segir að í fjármálafrumvarpinu kveði við sama tón og áður. Ljóst megi vera að aðferðafræði ríkisstjórnarinnar muni ekki gagnast í baráttunni við vexti og verðbólgu. „Aðferðafræði sem var gagnrýnd hér á Alþingi, af atvinnulífinu og verkalýðshreyfingunni, að hækka skatta og gjöld langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.“ 30 milljarða skattahækkun Stefán Vagn rakti aðrar hækkanir sem yllu sér áhyggjum, kílómetragjald og hækkun á ferðaþjónustuna. „Alls er rúmlega 30 ma.kr. skattahækkun boðuð í fjárlögum næsta árs. Hvert heldur hæstvirt ríkisstjórn að þessar hækkanir muni fara annað en út í verðlag og enda á borðum heimila og fyrirtækja í landinu?“ Hann vék að Evrópumálum og sagði að næsta verkefni Alþingis hljóti að vera að draga umsóknina formlega til baka. Kominn tími á þjóðarsátt „Það er kominn tími á þjóðarsátt. Framsóknarflokkurinn er reiðubúinn til samstarfs í vetur. Við höfum lagt fram tillögur í efnahagsmálum og munum halda því áfram. Sá tími sem fór í deilur um aðildarviðræður við Evrópusambandið er liðinn. Nú taka við verkefni vetrarins: heilbrigðisþjónusta sem þarf að styrkja, fjölskyldur sem þurfa svigrúm, fyrirtæki sem þurfa að geta fjárfest og sótt fram og menntun sem þarf að taka föstum tökum.” Tengdar fréttir Alþingi „Þetta er nú meira ástandið“ Beint: Stefnuræða forsætisráðherra „Ein þjóð í einu landi“ „Nú blasir við verðbólguvetur“ Þykk þingmálaskrá en sumt vantar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Við skuldum engri elítu neitt“ Innkeyrsla Cage hrundi niður í heljarinnar holu Óvænt svar Bullock sló í gegn hjá áhorfendum Lögreglan hefur rannsókn á flokki Farage Ný lög myndu fyrirbyggja að börn sjái nektarmyndir Umræðan Lífið er kokteilsósa Breyttur heimur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ „Við skuldum engri elítu neitt“ Sonja lagði rós á kistu Haraldar Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Borgar sig ekki að fara af stað Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Vill heimild til að selja Haga „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » „Við skuldum engri elítu neitt“ Innkeyrsla Cage hrundi niður í heljarinnar holu Óvænt svar Bullock sló í gegn hjá áhorfendum Lögreglan hefur rannsókn á flokki Farage Ný lög myndu fyrirbyggja að börn sjái nektarmyndir Umræðan Lífið er kokteilsósa Breyttur heimur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum Vill heimild til að selja Haga Myndir: Veifuðu af svölunum með bros á vör Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Borgar sig ekki að fara af stað Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Vill heimild til að selja Haga „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9%