Innlent | mbl | 9.9.2026 | 21:59 Eins og spennitreyja í samfélaginu Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra Flokks fólksins, ræddi um húsnæðismál, vexti og verðbólgu í ræðu sinni á Alþingi í kvöld þar sem stefnuræða forsætisráðherra var til umræðu. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi „Þetta er nú meira ástandið“ Beint: Stefnuræða forsætisráðherra Kominn tími á þjóðarsátt „Ein þjóð í einu landi“ „Nú blasir við verðbólguvetur“ » Fleiri tengdar fréttir „Húsnæðismarkaðurinn er á vondum stað og hefur verið það allt of lengi,“ hóf Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, mál sitt í umræðum á Alþingi um stefnuræðu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra sem nú standa yfir í þinginu og sagði húsnæðiskostnað í framhaldinu stærsta kjaramál samtímans. „Við þurfum sameiginlega sýn um hvernig við komumst út úr þessum vítahring þar sem íbúðamarkaðurinn er annaðhvort botnfrosinn eða á bullandi suðu,“ hélt ráðherra áfram. Frétt af mbl.is „Ein þjóð í einu landi“ Ótækt væri að sveitarfélög litu á byggingarlandi eingöngu sem tekjulind og ýttu þannig undir lóðabrask þar sem hver einasta króna sé kreist áður en uppbygging ætti sér stað. „Það er ótækt að eitt sveitarfélag geti stöðvað vöxt annars vegna neitunarvalds á svæðisskipulagi eða vaxtamörkum. Það er ótækt að heil hverfi sé og séu í biðstöðu áratugum saman vegna þess að einhver banki eða fjárfestir er að bíða eftir því að fá rétt verð fyrir landið,“ sagði Ragnar. Tíu ár frá fyrstu snertingu verkefna Fleira taldi ráðherra ótækt, svo sem að næstu kynslóðir kæmust ekki inn á íbúðamarkað vegna þess ástands sem skapast hefði síðustu ár og áratugi á ábyrgð og á vakt stjórnmálanna. Eins sagði hann ótækt að tíu ár liðu frá fyrstu snertingu verkefna við skipulag og þar til búið væri að fullklára íbúð til sölu. „Uppsveiflur og hrun. Þessu verðum við að breyta og þessu ætlum við að breyta. Við ætlum að tryggja jafnara framboð íbúða og lóða til skemmri tíma og íbúðir til framtíðar í takt við þarfir og eftirspurn, íbúðir sem venjulegt fólk hefur efni á að kaupa eða leigja,“ sagði Ragnar. Þá boðaði hann uppfærða og nýja byggingarreglugerð á komandi þingi sem yrði einfölduð úr átján köflum í átta með áherslu á skilvirkni, neytendavernd og gæði. „Við munum einnig leggja fram breytingar á skipulagslögum þar sem ferlar verða styttir og neitunarvaldi vegna vaxtamarka eytt,“ sagði Ragnar í ræðu sinni. Frétt af mbl.is „Nú blasir við verðbólguvetur“ Stofnframlög hækkuð „Við höfum nú þegar samið um uppbyggingu á allt að 1.400 lóðum sem flestar hafa lengi staðið auðar. Við höfum þegar stigið skref í átt að breytingum á hlutdeildarlánum í kerfinu sem hafa hjálpað fleiri fyrstu kaupendum en áður,“ hélt Ragnar áfram. Þá hefði almenna íbúðakerfið verið eflt og stofnframlög hækkuð til að tryggja uppbyggingu fleiri óhagnaðardrifinna leiguíbúða auk þess sem fram undan væru mikilvægar breytingar á húsaleigulögum þar sem ríkisstjórnin ætlaði sér að banna mánaðarlega vísitölutengingu og breyta fyrirkomulagi húsaleigutrygginga. Frétt af mbl.is Beint: Stefnuræða forsætisráðherra Nýtt kaupleiguform væri enn fremur í skoðun. „Síðast en ekki síst ætlum við að draga úr vægi verðtryggingar,“ sagði Ragnar. „Verðtryggð lán eru eins og spennitreyja í íslensku samfélagi, meinsemd sem við höfum þurft að búa við allt of lengi. Starfshópur um endurskoðun húsnæðislánakerfisins mun skila af sér niðurstöðu á yfirstandandi þingi og fyrstu skref í að draga úr vægi verðtryggingar verður stigið nú í haust,“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra , þar væri verk að vinna. Tengdar fréttir Alþingi „Þetta er nú meira ástandið“ Beint: Stefnuræða forsætisráðherra Kominn tími á þjóðarsátt „Ein þjóð í einu landi“ „Nú blasir við verðbólguvetur“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Eitt mikilvægasta verkefnið að byggja traust „Loforðin hafa verið svikin“ Planið fór út um gluggann eftir fimm mínútur Haaland: Hann greip í rassinn á mér Frá Liverpool til United Umræðan Lífið er kokteilsósa Breyttur heimur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hann er alltaf með þennan tannbursta“ Sonja lagði rós á kistu Haraldar „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Borgar sig ekki að fara af stað Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Vill heimild til að selja Haga Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » Eitt mikilvægasta verkefnið að byggja traust „Loforðin hafa verið svikin“ Planið fór út um gluggann eftir fimm mínútur Haaland: Hann greip í rassinn á mér Frá Liverpool til United Umræðan Lífið er kokteilsósa Breyttur heimur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Veifuðu af svölunum með bros á vör Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf Sonja lagði rós á kistu Haraldar „Nú blasir við verðbólguvetur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Borgar sig ekki að fara af stað Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Vill heimild til að selja Haga Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9%