Innlent | Morgunblaðið | 10.9.2026 | 7:54 Undrast röksemdafærslu ráðherra Efstaleiti. Þar eru höfuðstöðvar ríkisfjölmiðlanna fjögurra til húsa. mbl.is/Eyþór Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Nær 300 stöðugildi hjá Ríkisútvarpinu Taki yfir skuldabréf vegna skerðingar auglýsingatekna RÚV eigi ekki að „bítast um molana“ „Óþarfasta ríkisstofnunin með greini“ Gagnrýni Loga kom á óvart » Fleiri tengdar fréttir Guðmundur H. Björnsson, framkvæmdastjóri sölu og markaðsmála hjá Sýn, veltir fyrir sér hvort afstaða Loga Einarssonar menningarráðherra til stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði byggist á röngum gögnum. Ríkisfjölmiðlarnir eru sem kunnugt er bæði á fjárlögum og með auglýsingadeild. Guðmundur segist hafa hlýtt á Loga í viðtali í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni. Þar hafi Logi fært þau rök fyrir áframhaldandi auglýsingasölu RÚV, að reynsla annarra ríkja sýndi, að ef ríkismiðillinn væri tekinn af auglýsingamarkaði leitaði auglýsingaféð ekki til innlendra miðla heldur erlendra. „Logi Einarsson hefur lagt fram tillögur til að styðja við einkarekna fjölmiðla en auglýsingamarkaðurinn á Íslandi hefur breyst mjög mikið. Stærsta breytan í þeim efnum er tilkoma erlendu tæknirisanna Alpabet og Meta á markaðinn en þeir taka nú til sín meira en 50% af auglýsingatekjum á Íslandi samkvæmt tölum Hagstofunnar frá 2024. Ef við förum aftur til 2009 voru einkareknir fjölmiðlar með um 80% af auglýsingatekjunum,“ segir Guðmundur og hann hjó eftir því að Logi tók dæmi að utan um hvernig alþjóðlegu risarnir fái auglýsingatekjur sem skapast þegar ríkisfjölmiðill hverfur af markaði. Sérkennilegur samanburður „Logi nefndi sérstaklega reynslu Spánverja, Frakka og Letta af því að taka ríkisfjölmiðilinn af auglýsingamarkaði. Hann sagði orðrétt að það hefði skilað því að megnið af peningunum hefði farið úr landi og er þá auðvitað að vísa til þessara erlendu tæknirisa. Ég vildi kynna mér þetta og fór að grúska,“ segir Guðmundur og kannaði hvað gerðist í ríkjunum sem ráðherrann nefndi. „Ég fann sem dæmi að ríkismiðillinn á Spáni var tekin af auglýsingamarkaði 2010. Níu mánuðum síðar höfðu tekjur einkareknu fjölmiðlanna á Spáni aukist mikið og skilað sér nánast að fullu til innlendu miðlanna. Samfélagsmiðlarnir voru það ungir árið 2010 að þeir voru ekki farnir að taka mikið til sín og ég skil því ekki hvernig hægt er að komast að þessari niðurstöðu. Mér finnst skrítið að nota þetta sem rök fyrir því að tekjur RÚV á auglýsingamarkaði myndu leita til erlendu miðlanna ef RÚV færi af auglýsingamarkaði.“ Guðmundur veltir því fyrir sér hvort ráðuneytið lumi á gögnum sem ekki hafi verið nefnd í umræðunni. „Vonandi hef ég rangt fyrir mér en ef ráðuneytið er með einhver gögn sem ég hef ekki séð þá væri mjög áhugavert ef við myndum fá að sjá þau. Það væri gott innlegg í umræðuna ef gögn sem sýna fram á hið gagnstæða kæmu fram.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Nær 300 stöðugildi hjá Ríkisútvarpinu Taki yfir skuldabréf vegna skerðingar auglýsingatekna RÚV eigi ekki að „bítast um molana“ „Óþarfasta ríkisstofnunin með greini“ Gagnrýni Loga kom á óvart » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Keyrði út um allt Þýskaland í leit að bata Birta Ósk nýr markaðsstjóri Prís 57 ára og sló í gegn í sundbol „Hann er búinn að gefa manni ofboðslega mikið“ Heiðruðu Harald konung og settu met Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum „Íslenska menntakerfið er ekki að skila árangri“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl „Við skuldum engri elítu neitt“ Fullmikil áhersla á vellíðan á kostnað annarra þátta „Þetta er nú meira ástandið“ Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » Keyrði út um allt Þýskaland í leit að bata Birta Ósk nýr markaðsstjóri Prís 57 ára og sló í gegn í sundbol „Hann er búinn að gefa manni ofboðslega mikið“ Heiðruðu Harald konung og settu met Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl „Við skuldum engri elítu neitt“ Fullmikil áhersla á vellíðan á kostnað annarra þátta „Þetta er nú meira ástandið“ Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur