Innlent | Morgunblaðið | 10.9.2026 | 10:10 Hjúkrunarheimili hafnað Nýherjahúsið er glæsileg skrifstofubygging sem setur mikinn svip á hverfið. Það fær nýtt hlutverk. mbl.is/sisi Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Hugmyndir um að breyta Nýherjahúsinu Borgartúni 37 í hjúkrunarheimili fengu ekki hljómgrunn hjá skipulagsfulltrúa Reykjavíkur. Reitir atvinnuhúsnæði ehf. sendi fyrirspurnina til borgarinnar í sumar. Með fylgdi tillaga THG arkitekta, þar sem gert var ráð fyrir 90-100 rýmum og að stærð hvers rýmis yrði 68 fermetrar. Helstu kostirnir að mati Reita voru: Nálægð við Landspítala, útsýni yfir Faxaflóa og Esjuna, mikil þjónusta í næsta nágrenni, svalir og útisvæði til hásuðurs og sveigjanleiki í skipulagi innandyra. Í umsögn verkefnastjóra skipulagsfulltrúa kemur m.a. fram að fyrirhugað hjúkrunarheimili yrði á horni fjölfarinna gatna (Sæbraut, Kringlumýrarbraut, Borgartún), því sé hætta á loftmengun og hávaða á útisvæðum. Nálægð við bensínstöð Þá sé bensínstöð fyrir sunnan lóð óheppilegur nágranni hjúkrunarheimilis. Borgarhlutinn sé einn kraftmesti atvinnukjarni landsins. Borgartún 37 sé andlit kjarnans þar sem komið er inn á hann úr austri. Þótt íbúðir séu heimilar á svæðinu og staðsetning hjúkrunarheimilis innan hans geti stuðlað að blöndun á svæðinu gæti slík blöndun haft slæm áhrif á þessa „dýnamík“ að mati verkefnastjórans. Æskilegt sé að hafa þjónustukjarna fyrir aldraða í tengslum við hjúkrunarheimili. Ekki liggi fyrir áform um þjónustukjarna fyrir aldraða í tengslum við hjúkrunarheimili að Borgartúni 37, af hálfu borgarinnar eða annarra. Tillöguuppdrættir sýni ekki aðgerðir sem komi til móts við þetta ákvæði. „Af ofangreindu er ljóst að þrátt fyrir ýmsa kosti er hjúkrunarheimili á þessum stað óheppilega staðsett, bæði með tilliti til nálægðar við fjölfarnar götur og bensínstöð. Mikilvægara er þó að tillagan uppfyllir ekki ákvæði skipulagsreglugerðar um dvalarsvæði á lóðum þjónustustofnana né ákvæði Skipulags hjúkrunarheimila um útigarð. Að lokum hugnast skipulagsfulltrúa ekki að leyfa hjúkrunarheimili á mikilvægum stað í dýnamískum atvinnukjarna,“ segir í umsögninni. Því er neikvætt tekið í fyrirspurnina. Það vakti athygli á sínum tíma þegar allir starfsmenn Nýherja tóku fyrstu skóflustungu að húsinu og mynduðu um leið merki félagsins. mbl.is/Júlíus Borgartún 37 er steinsteypt bygging á fimm hæðum auk kjallara, að því er fram kemur í umsögn verkefnastjórans. Byggingin er hönnuð af Guðna Pálssyni fyrir A1 Arkitekta í eins konar póstmódernískum afbyggingarstíl (e. deconstructivism ) og byggð árin 1999-2000 til að hýsa skrifstofur. Allir starfsmenn Nýherja, 225 talsins, mynduðu merki félagsins er þeir tóku fyrstu skóflustunguna að nýbyggingunni. Húsnæðið er skráð sem skrifstofa í fasteignaskránni. Húsið var upphaflega byggt sem höfuðstöðvar upplýsingatæknifyrirtækisins Nýherja sem síðar varð Origo. Húsið hefur í gegnum tíðina hýst fjölbreytta starfsemi og verið í eigu mismunandi fasteignasjóða og félaga. Origo er í dag undir hatti Skyggnis eignarhaldsfélags hf. ásamt fleiri fyrirtækjum. Í sumar flutti Skyggnir ásamt dótturfélögum starfsemi sína að Dalvegi í Kópavogi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mikið mannfall í eldi um borð í skipi í kínverskri höfn Olifa sækir inn á veitingamarkaðinn Hjúkrunarheimili hafnað „Þetta er langstærsta vandamál Liverpool“ Eftir 24 ár er annað líf farið að freista Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Áfengisverslun á netinu: Svæft frumvarp endurflutt Undrast röksemdafærslu ráðherra „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Heiðruðu Harald konung og settu met Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl „Við skuldum engri elítu neitt“ Undrast röksemdafærslu ráðherra Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » Mikið mannfall í eldi um borð í skipi í kínverskri höfn Olifa sækir inn á veitingamarkaðinn Hjúkrunarheimili hafnað „Þetta er langstærsta vandamál Liverpool“ Eftir 24 ár er annað líf farið að freista Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Veifuðu af svölunum með bros á vör „Þetta er nú meira ástandið“ Áfengisverslun á netinu: Svæft frumvarp endurflutt „Íslenska menntakerfið er ekki að skila árangri“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Heiðruðu Harald konung og settu met Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl „Við skuldum engri elítu neitt“ Undrast röksemdafærslu ráðherra Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur