Innlent | mbl | 10.9.2026 | 19:45 Viðsnúningur í afstöðu Reykjavíkurborgar Nýherjahúsið við Borgartún 37. mbl.is/sisi Setja bókamerki Hugmyndir um að breyta Nýherjahúsinu við Borgartún 37 í hjúkrunarheimili fengu jákvæðari hljómgrunn hjá Reykjavíkurborg eftir að fasteignafélagið Reitir gerði breytingar á tillögu sinni. Fyrr í dag var greint frá því að skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar hefði tekið neikvætt í hugmynd Reita um að breyta Nýherjahúsinu í hjúkrunarheimili. Fyrirspurn þess efnis var send frá fasteignafélaginu í sumar. Frétt af mbl.is Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Gert ráð fyrir 90-100 rýmum Með fylgdi tillaga THG arkitekta, þar sem gert var ráð fyrir 90-100 rýmum og að stærð hvers rýmis yrði 68 fermetrar. Helstu kostirnir að mati Reita voru: nálægð við Landspítala, útsýni yfir Faxaflóa og Esjuna, mikil þjónusta í næsta nágrenni, svalir og útisvæði til hásuðurs og sveigjanleiki í skipulagi innandyra. Í umsögn verkefnastjóra skipulagsfulltrúa kom meðal annars fram að fyrirhugað hjúkrunarheimili yrði á horni fjölfarinna gatna, Sæbrautar, Kringlumýrarbrautar og Borgartúns, og því væri hætta á loftmengun og hávaða á útisvæðum. Þá væri bensínstöð sunnan við lóðina óheppilegur nágranni hjúkrunarheimilis. Breyttu tillögunni eftir neikvæð fyrstu viðbrögð Í samtali við mbl.is segir Lára Hilmarsdóttir, samskiptastjóri Reita, að eftir að fasteignafélagið gerði breytingar á tillögu sinni hafi félagið fengið jákvæð viðbrögð frá Reykjavíkurborg, sem taki nú jákvæðari afstöðu til hugmyndarinnar. Aðspurð segir Lára breytinguna m.a. snúa að útisvæði húsnæðisins, sem vísað var til í umsögn verkefnastjórans. „Reitir uppfærðu tillöguna sína þannig að útfærslan á útisvæðinu væri önnur og myndi þannig henta betur. Það er ein helsta breytingin á tillögu Reita,“ segir Lára. Tillaga fasteignafélagsins er því enn til skoðunar að sögn Láru. Slíkar tillögur taki oft breytingum í ferli sem þessu. Eru að útvíkka starfsemi sína „Kjarnastarfsemi Reita er og hefur verið útleiga á atvinnufasteignum en félagið er að útvíkka starfsemina í uppbyggingu og þróun og er í auknum mæli orðið að þekkingar- og þróunarfélagi. Við horfum mikið til þess að þróa fasteignir sem þörf er á í samfélaginu og hjúkrunarheimili eru þar mjög ofarlega enda kallar öldrun þjóðar á stóraukna framtíð hjúkrunarrýma,“ segir Lára. Hún bendir á að fasteignafélagið áformi nú uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri og var tilboð félagsins í það verkefni valið hagstæðast af FSRE í nýlegu útboði. Þá séu Reitir einnig að breyta skrifstofum Icelandair við Nauthólsveg í hjúkrunarheimili. „Við erum að skoða hvernig við getum mætt þessari þörf, þá annaðhvort með nýframkvæmdum eða umbreytingu húsnæðis yfir í hjúkrunarheimili.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Man. Utd - Sabah, staðan er 3:0 Viðsnúningur í afstöðu Reykjavíkurborgar Fyrsti sigur Eyjamanna Dóttir Önnu Nicole Smith sýnir nýja hlið á tvítugsafmælinu Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Birta ekki dóma yfir sjálfum sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni „Þetta er nú meira ástandið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Nýjast á mbl.is » Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Man. Utd - Sabah, staðan er 3:0 Viðsnúningur í afstöðu Reykjavíkurborgar Fyrsti sigur Eyjamanna Dóttir Önnu Nicole Smith sýnir nýja hlið á tvítugsafmælinu Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Handvirk vinna á landamærum hægir á öllu ferlinu „Þetta er nú meira ástandið“ 3,2 milljarða halli á rekstri borgarinnar Gæti margfaldað orkuna Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu