Donald Trump hefur lofað hverjum fullorðnum bandarískum ríkisborgara 5.000 dala greiðslu, eða um sex hundruð þúsund krónum, ef repúblikanar vinna meirihluta bæði í fulltrúadeild og öldungadeild Bandaríkjaþings í þingkosningunum í nóvember. Á vef CNBC segir að Trump hafi lofað greiðslunni á kosningafundi Repúblikanaflokksins í Dallas og vísað til efnahagslegs styrks á forsetatíð sinni. Hann bað jafnframt fundargesti um að láta eins og hann væri sjálfur í framboði. Samkvæmt kosningaspám eru hins vegar líkur á að demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni, sem myndi þrengja verulega að möguleikum forsetans á að koma löggjafaráformum sínum í framkvæmd. Áætlað er að heildarkostnaður við greiðslurnar færi yfir eina billjón dala, eða meira en hundrað billjónir króna. Til samanburðar hefur bandaríska alríkið þegar greitt 1,27 billjónir dala í vexti af ríkisskuldum það sem af er fjárlagaárinu og 1,36 billjónir dala eru eyrnamerktar varnarmálum á árinu. Sjá einnig Trump kominn á bandaríska mynt Halli á ríkisrekstri Bandaríkjanna, sem samsvarar um 5,8% af landsframleiðslu, nálgast sömuleiðis 1,8 billjónir dala á árinu og námu útgjöld ríkisins meira en sex billjónum dala frá október 2025 til júlí. Ríkisskuldirnar námu 122,6% af landsframleiðslu á fyrsta ársfjórðungi og fjármögnunarkostnaður ríkissjóðs hefur hækkað skarpt undanfarnar vikur vegna þrálátrar verðbólgu og mikillar skuldsetningar. Ólöglegt boð Tillagan virðist þó stangast á við bandarísk lög en samkvæmt alríkislögum er refsivert að bjóða eða inna af hendi greiðslu í því skyni að hafa áhrif á það hvort eða hvernig kjósandi greiðir atkvæði. Slíkt brot getur varðað sekt eða allt að eins árs fangelsi, eða hvoru tveggja. Ef sýnt er fram á ásetning getur brotið varðað allt að tveggja ára fangelsi. Í júlí komst þverpólitísk nefnd til dæmis að þeirri niðurstöðu að Elon Musk hefði líklega brotið lög í Wisconsin þegar hann afhenti kjósendum ávísanir að fjárhæð ein milljón dala í tengslum við hæstaréttarkosningar ríkisins árið 2025. Musk varði einnig milljónum dala til stuðnings Brad Schimel, frambjóðanda Repúblikana, sem tapaði fyrir Susan Crawford.