Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 10.9.2026 | 11:28 Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Húsavík. Áætlunarflugi er hætt og nú áformar ríkið að selja flugstöðina, eins og fram kemur í fjárlagafrumvarpinu. mbl.is/Sigurður Bogi Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Gagnrýna 100 prósenta hækkun komugjalda Vill heimild til að selja Haga Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Segir kílómetragjaldið betri kost » Fleiri tengdar fréttir Flugstöðin á Húsavík er til sölu því eins og kemur fram í fjárlagafrumvarpinu er lagt til að ráðherra fái heimild til að selja húsið. Morgunblaðið leitaði eftir viðbrögðum sveitarstjórnarmanna og þingmanna kjördæmisins og enginn hafði vitneskju um að þetta stæði til, ekki einu sinni Sigurjón Þórðarson formaður fjárlaganefndar, sem er þingmaður kjördæmisins. Hann segist ekki hafa vitað af þessari tillögu í fjárlagafrumvarpinu en telur að hún komi frá Isavia innanlandsflugvöllum. „Ég ýtti á eftir því í sumar að veitt yrði fé til viðhalds á því sem þarf að laga á staðnum. Það þarf að fara í fyrirbyggjandi viðhald á flugstöðinni því húsið liggur undir skemmdum eins og staðan er núna og þetta er það sem við þingmenn kjördæmisins þurfum að skoða því þetta snertir innviði samfélagsins.“ Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla hjá Isavia, segir að tillagan um að selja húsið komi frá þeim. „Það er ekki lengur áætlunarflug til Húsavíkur og sjúkraflugið þarf ekki aðstöðu í flugstöðinni þannig að fyrst og fremst er þetta betri nýting á fasteignum ríkisins sem vakir fyrir mér. Eins og staðan er núna er frekar ólíklegt að áætlunarflug til Húsavíkur hefjist aftur.“ Það sést að húsinu hefur ekki verið haldið við. Hvernig stendur á því? „Við höfum ekki haft fjármagn til þess og það er mikil innviðaskuld í þessu kerfi og minnstu flugvellirnir, sem ekki er lengur áætlunarflug til, hafa setið á hakanum, það skal alveg viðurkennast.“ Spurð hvort þetta sé vísbending um að flug til Húsavíkur sé að leggjast af segir Sigrún að áætlunarflugið sé aflagt. Sjúkraflug þurfi ekki flugstöð og því sé ekki not fyrir húsnæðið í starfsemi Isavia. Bergþór Bjarnason sveitarstjóri Norðurþings og Helena Eydís Ingólfsdóttir forseti sveitarstjórnar segjast ekki hafa verið höfð með í ráðum með að veita ráðherra heimild til að selja flugstöðina í bænum. „Við sáum þetta bara í fjárlagafrumvarpinu og höfum ekki heyrt af þessum áformum áður.“ Þau benda á að leigu- og einkaflug fari fram á flugvellinum og fyrirtæki sem koma til að skoða aðstæður á Bakka nýti sér flugvöllinn þannig að það sé þörf fyrir bygginguna til að þjóna flugvellinum. Spurð hvort Vaðlaheiðargöng og bættar vegasamgöngur hafi orðið til þess að flugvöllur á Húsavík sé orðinn óþarfur segja þau að það séu 75 kílómetrar milli Húsavíkur og Akureyrar og Húsavíkurflugvöllur sé notaður þegar ekki er hægt að lenda á Akureyri. „Það er ekki hægt að líta fram hjá því að við tökum á móti nokkur hundruð þúsund ferðamönnum á hverju sumri og það er öryggisatriði að hafa völlinn opinn.“ Blaðamaður hitti þá Þorgrím Sigmundsson og Jens Garðar Helgason þingmenn Norðausturkjördæmis í gær og spurði þá hvort þeir hefðu vitað af þessari tillögu og þeir staðfestu að svo væri ekki. Þeir voru sammála um að komið væri að viðhaldi á húsinu og því þyrfti að sinna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Gagnrýna 100 prósenta hækkun komugjalda Vill heimild til að selja Haga Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Segir kílómetragjaldið betri kost » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Liverpool að kaupa franskan miðjumann? Fulltrúar sveitarfélaga fái að vígja hjón Nudd og hundleiðinlegt veður Eins og snýtt úr nös móður sinnar Allt undir hjá varnarmanni United Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Birta ekki dóma yfir sjálfum sér Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þetta er nú meira ástandið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Gæti margfaldað orkuna Heiðruðu Harald konung og settu met Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Hjúkrunarheimili hafnað Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Undrast röksemdafærslu ráðherra Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » Liverpool að kaupa franskan miðjumann? Fulltrúar sveitarfélaga fái að vígja hjón Nudd og hundleiðinlegt veður Eins og snýtt úr nös móður sinnar Allt undir hjá varnarmanni United Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Selenskí og Þorgerður ræddu saman í Keflavík Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa „Ein þjóð í einu landi“ Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Gæti margfaldað orkuna Heiðruðu Harald konung og settu met Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Hjúkrunarheimili hafnað Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Undrast röksemdafærslu ráðherra Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur

Share this article