Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Igloo hvetur leigu­sala til að sýna sam­félags­lega ábyrgð

  • What: Igloo proposes rent control measures
  • Impact: Real estate policy update
Read Full Article →

Fasteignatæknifélagið Igloo, sem er í meirihlutaeigu Arion banka, hefur bætt við valkosti fyrir leigusala til að takmarka hækkanir leiguverðs við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. „Möguleikinn sem leigusalar hafa er valkvæður en Igloo hvetur leigusala til að sýna samfélagslega ábyrgð og taka þátt í að vinna að fyrirsjáanleika á leigumarkaði en leiguverð myndar í dag um fjórðung vísitölu neysluverðs. Igloo kallar því eftir samstilltu átaki leigusala um að miða verðhækkanir sínar við verðbólgumarkmið sé komist hjá öðru,“ segir í tilkynningu Igloo. „Verðbólga mælist í dag um og yfir 5% og því myndu verðbreytingar leigusamninga sem tengdir væru verðbólgumarkmiði því tempra að einhverju marki hækkanir vísitölunnar og þar með verðlags í landinu.“ Mikill meirihluti leigusamninga á Íslandi er gerður í gegnum Igloo. Félagið segir að þótt dregið hafi verulega úr verðtryggingu leigusamninga eftir nýlegar lagabreytingar þá sé enn stór hluti leigusala sem tengir samninga sína við vísitölu neysluverðs. Sjá einnig Tekjur aukast um 30% „Vísitala neysluverðs byggir meðal annars á leiguverði og því getur víðtæk tenging leigusamninga við vísitölu neysluverðs skapað víxláhrif til hækkana umfram það sem eðlilegt væri. Ef allir leigusamningar væru verðtryggðir og myndu hækka mánaðarlega út frá vísitölu neysluverðs færi sú hækkun beint inn í næstu verðbólgumælingu að hluta og myndi viðhalda örlítið hærri verðbólgu en ella.“ Sjá einnig Tengja mætti leigu­samninga frekar við samræmdu vísitöluna Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í vikunni leggur starfshópur þríhliða samtals ríkisstjórnar, ASÍ og SA til í nýrri skýrslu um valkosti til að draga úr sjálfvirkum verðbreytingum að hvetja mætti leigusala og leigutaka til að hverfa frá vísitölutengingunum. Annars hvetur hópurinn leigusala til að binda leiguverð fremur við samræmda vísitölu neysluverðs heldur en vísitölu neysluverðs. Leigusalar á MyIgloo geta nú tengt leiguverðsbreytingar við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands sem miðast við fasta 2,5% hækkun verðlags á ári. Igloo bendir á að stjórnvöld hafi gripið til aðgerða sem miða að því að draga úr víðtækum vísitöluteningum á húsnæðismarkaði, s.s. með því að takmarka vísitölutengingu við samninga sem eru lengri en eitt ár. Þá hafi stjórnvöld boðað enn frekari takmarkanir á breytingu leiguverðs. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, boðaði í vikunni breytingar á reglum um vísitöluhækkanir húsaleigu þannig að leiga megi aðeins hækka einu sinni á tólf mánaða tímabili. „Igloo tryggir að leigusamningar séu gerðir í samræmi við gildandi húsaleigulög hverju sinni og myndi möguleiki leigusala á árlegri tengingu við verðbólgumarkmið því auka enn frekar áhrifamátt boðaðra lagabreytinga, ekki bara fyrir leigutaka heldur fyrir almenna verðlagsþróun í landinu. Slíkt átak á leigumarkaði gæti skapað fordæmi fyrir aðra geira samfélagsins þar sem verðtrygging er útbreidd og tengingar við vísitölu neysluverðs gætu því almennt færst úr því formi yfir í verðbólgumarkmið.“

Share this article