Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Styrkás hagnast um tæpar 800 milljónir

Read Full Article →

Styrkás skilaði 797 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við 681 milljónar hagnað árið áður. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu félagsins. Taka ‏þarf tillit við samanburð milli rekstrarára að Hreinsitækni og HRT þjónusta urðu hluti af samstæðunni frá 1. janúar 2026. Þá lauk Skeljungur lauk kaupum á öllu hlutafé í Gallon þann 31. maí 2026, en félagið varð hluti af samstæðunni frá 1. júní 2026. Tekjur Styrkáss á fyrri árshelmingi jukust um 5,5% milli ára g námu 30 milljörðum króna. Framlegð jókst um helming og nam 7,5 milljörðum, samanborið við 4,9 milljarða á sama tímabili í fyrra. Þjónustutekjur samstæðunnar jukust um 10% á milli ára og leigutekjur um 13%. „Sölutekjur voru hins vegar undir áætlun á tímabilinu sem skýrist af því að afhending seldra tækja sem áætluð var á fyrri árshelmingi færist yfir á þann síðari.“ EBITDA-afkoma félagsins jókst um 48% milli ára og nam 2.466 milljónum króna. Rekstrarhagnaður eftir afskriftir (EBIT) nam 1.654 milljónum króna. Afkomuhorfur Styrkás fyrir árið 2026 eru óbreyttar frá því sem áður hefur verið birt. Gert er ráð fyrir að rekstrarhagnaður eftir afskriftir (EBIT) samstæðunnar árið 2026 verði á bilinu 3.350–3.650 milljónir króna án áhrifa Gallon. Þann 2. júlí 2026 undirritaði félagið samning við Landsbankann um endurfjármögnun á öllum bankalánum samstæðunnar. Langtímalán að fjárhæð 6 milljarðar króna voru endurfjármögnuð til fimm ára með einni höfuðstólsafborgun á lokagjalddaga, auk lánalínu vegna rekstrarfjármögnunar. „Breytt afborgunarferli og bætt fjármögnunarkjör er áætlað að skili samstæðunni um 400 milljónir króna í auknu sjóðstreymi á ári. Sömu fjárhagslegu skilyrði gilda um bankalánin og um skráð skuldabréf félagsins.

Share this article