Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

1,5 milljarða rekstrar­hagnaður Styrkás

Read Full Article →

Rekstrarhagnaður Styrkás eftir afskriftir (EBIT) nam 1,5 ma.kr. á fyrri árshelmingi þessa árs sem er í samræmi við áætlun félagsins. Þjónustutekjur jukust um 10% á milli ára og leigutekjur um 13%. Sölutekjur voru undir áætlun á fyrri árshelmingi sem skýrist af því að afhending seldra tækja sem áætluð var á fyrri árshelmingi færist yfir á seinni árshelming er segir í fréttatilkynningu félagsins. Rekstrarhagnaður félagsins án áhrifa frá Gallon, sem varð hluti af samstæðunni þann 1. júní, nam rúmum 1,6 milljörðum króna en félagið gjaldfærir 100 milljóna króna einskiptiskostnað vegna kaupa á félaginu. Áætlað er að rekstrarhagnaður Gallon eftir afskriftir (EBIT) verði um 250 milljónir króna á ársgrundvelli eftir skipulagsbreytingar. Gallon rekur birgða- og geymarými á sex stöðum við sjávarsíðuna og sinnir geymslu flugeldsneytis á sjö flugvöllum. Félagið segir afkomuhorfur óbreyttar og gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður eftir afskriftir samstæðunnar árið 2026 verði á bilinu 3.350-3.650 milljónir króna án áhrifa Gallon. Nettó vaxtaberandi skuldir samstæðunnar námu samtals 12,4 milljörðum króna í lok júní en vaxtaberandi skammtímaskuldir eru sagðar vera í hástöðu vegna árstíðarsveiflu í veltufjárbindingu. Styrkás stefnir á skráningu á aðalmarkað Kauphallarinnar á öðrum ársfjórðungi 2027 og hefur Landsbankinn verið ráðinn sem umsjónaraðili með skráningunni og hlutafjárútboði. Sjá einnig Ráða ráðgjafa vegna kauphallarskráningar Félagið undirritaði einnig samning við Landsbankann um endurfjármögnun öllum bankalánum samstæðunnar að fjárhæð 6 milljarða króna. Lánin voru endurfjármögnuð til fimm ára með höfuðstólsafborgun í lok lánstíma. Breytt afborgunarferli og bætt fjármögnunarkjör eru sögð skila árlega um 400 milljónum króna í auknu sjóðstreymi. Sjá einnig Styrkás endur­fjár­magnar bankalán

Share this article