Innlent | mbl | 10.9.2026 | 13:39 3,2 milljarða halli á rekstri borgarinnar Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, segir niðurstöðurnar sýna glöggt hve mikilvægt verði að ná stjórn á rekstri borgarinnar, enda sé ekkert sem ógni grunnþjónustunni meira en óábyrgur rekstur. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Krónan styrkist þrátt fyrir 150 milljarða halla Reikningurinn sendur til vinnandi fólks Gjaldhækkanir ýti undir verðbólgu Skuldir ríkissjóðs aukist um 196 milljarða Vilja draga úr vægi verðtryggingar » Fleiri tengdar fréttir Rekstur Reykjavíkurborgar „Er borgarfulltrúinn ekki í jafnvægi?“ Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Hafa áhyggjur af stöðunni eftir uppsagnir Uppsagnir ná einungis 15% af markmiðinu Sögð hafa fengið boð um lakari kjör » Fleiri tengdar fréttir Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 3,2 milljarða króna fyrstu sex mánuði ársins sem var 3,2 milljörðum lakari niðurstaða en á sama tímabili 2025. Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar-júní 2026 var afgreiddur í borgarráði í dag. Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að miklar áskoranir blasi við í rekstri borgarinnar og að halli sé á rekstri bæði samstæðu og borgarsjóðs. Tekið er fram að hagræðingaraðgerðum sé ætlað að mæta hallarekstrinum. Borgin segir að óvissa um efnahagshorfur sé enn mikil og erfið staða sé uppi á innlendum vinnumarkaði. Verðbólguvæntingar séu enn yfir markmiði og talin er hætta á að verðbólga reynist meiri en spár segja til um. 5,5 milljarða halli af A- og B-hluta Þá segir í tilkynningunni að rekstrarniðurstaða A- og B-hluta hafi verið neikvæð um 5,5 milljarða sem hafi verið 10,6 milljörðum lakari niðurstaða en á sama tímabili árið 2025. „Í áætlun var gert ráð fyrir 6,7 ma.kr. rekstrarafgangi. Matsbreyting fjárfestingaeigna Félagsbústaða var neikvæð á tímabilinu um sem nemur 2,3 ma.kr. sem hafði neikvæð áhrif á niðurstöður rekstrar. Fjármagnsgjöld (nettó) námu 19,7 ma.kr. eða 5,6 ma.kr. hærri á fyrstu sex mánuðum þessa árs en þess síðasta. Vísitala neysluverðs hefur hækkað meira frá áramótum en áætlað var eða um 3,74% í stað 1,75%,“ segir í tilkynningunni. Þá kemur fram að afskriftir hafi verið tveimur milljörðum kr. yfir áætlun sem skýrist af viðbótarafskriftum vegna fasteigna til niðurrifs, verkefna sem hætt hafi verið við, svo sem selalaugar í Húsdýragarði, og hjúkrunarheimila sem áður hafi verið í sameiginlegri eign ríkis og borgar en fluttust 1. janúar yfir til ríkisins og bókfært verð var afskrifað í samræmi við lög nr. 40/2025. Borgin segir að óvissa um efnahagshorfur sé enn mikil og erfið staða sé uppi á innlendum vinnumarkaði. mbl.is/Karítas Verðbólgan hefur áhrif Fjármagnsgjöld (nettó) námu 3,9 milljörðum eða 1,9 milljörðum hærri en áætlun sem skýrist einkum af hærri verðbólgu en áætlað var. Arður af eignarhlutum nam 3,3 milljörðum en vaxtagjöld og verðbætur námu 7,6 milljörðum og voru tveimur milljörðum hærri en það sem gert hafði verið ráð fyrir. Veltufé frá rekstri nam 8,6 milljörðum og var 7,9% í hlutfalli af tekjum tímabilsins. Ekkert ógnar grunnþjónustunni meira en óábyrgur rekstur Haft er eftir Hildi Björnsdóttur borgarstjóra að niðurstöðurnar sýni glöggt hve mikilvægt verði að ná stjórn á rekstri borgarinnar, enda sé ekkert sem ógni grunnþjónustunni meira en óábyrgur rekstur. „Við höldum áfram vinnunni í hagræðingarhóp og leggjum áherslu á að auka skilvirkni, draga úr sóun og bæta þjónustuna,“ er haft eftir borgarstjóra. Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Krónan styrkist þrátt fyrir 150 milljarða halla Reikningurinn sendur til vinnandi fólks Gjaldhækkanir ýti undir verðbólgu Skuldir ríkissjóðs aukist um 196 milljarða Vilja draga úr vægi verðtryggingar » Fleiri tengdar fréttir Rekstur Reykjavíkurborgar „Er borgarfulltrúinn ekki í jafnvægi?“ Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Hafa áhyggjur af stöðunni eftir uppsagnir Uppsagnir ná einungis 15% af markmiðinu Sögð hafa fengið boð um lakari kjör » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ætlar að höfða mál gegn eigin félagi 3,2 milljarða halli á rekstri borgarinnar Tók Hosiló upp í laumi og myndaði allt á símann Vilja ekki sjá þessa óþolandi vefkökuborða Stuðningsmenn Liverpool geta andað léttar Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Niðurrifi í Grindavík gæti lokið um mitt næsta ár „Ein þjóð í einu landi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » Ætlar að höfða mál gegn eigin félagi 3,2 milljarða halli á rekstri borgarinnar Tók Hosiló upp í laumi og myndaði allt á símann Vilja ekki sjá þessa óþolandi vefkökuborða Stuðningsmenn Liverpool geta andað léttar Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er nú meira ástandið“ „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur