Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fækkun hringsiglinga blasir við

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 10.9.2026 | 16:30 Fækkun hringsiglinga blasir við Einn vinsælasti áfangastaður skemmtiferðaskipa ár hvert er Ísafjörður. Sumarið 2026 er gert ráð fyrir 176 komum farþegaskipa þangað. Íbúar bæjarins hafa af þessu miklar tekjur. mbl.is/Árni Sæberg Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Óstöðugleiki og ófyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi skemmtiferðaskipa á Íslandi á árunum 2023 til 2025 er nú að skila sér af fullum þunga í samdrætti á landsvísu. Þetta segir Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland. Þetta eru samtök 30 fyrirtækja sem starfa hérlendis við móttöku skemmtiferðaskipa. Samkvæmt samræmda bókunarkerfinu DOKK er núna 881 skipakoma skráð á landinu öllu árið 2027, sem er 27% samdráttur miðað við árið 2024. Árið 2026 er ekki liðið en samkvæmt bókunarstöðu eru áætlaðar 1.043 komur skemmtiferðaskipa í ár, sem er 14% samdráttur miðað við árið 2024. En hafa ber í huga, þegar mið er tekið af minni samdrætti í ár, þann mikla áhuga sem var á sólmyrkvanum 12. ágúst síðastliðinn. Staðan hefði því verið enn verri ef þessa náttúrufyrirbrigðis hefði ekki notið við, segir Sigurður. Fjölgun frá árinu 2012 Ferðum svokallaðra leiðangursskipa hafði fjölgað jafnt og þétt síðan 2012 þegar lagabreyting var gerð til að hvetja skipin til að dvelja lengur á Íslandi og heimsækja fleiri hafnir. Þetta eru skip sem taka farþega í Reykjavík og Hafnarfirði og sigla tímabundið í fjóra mánuði á ári hringinn í kringum landið. En vegna þess að stjórnvöld hafa aukið álögur á greinina stefnir í algert hrun, að mati Sigurðar Jökuls. Hringsiglingum fækkar úr 57 árið 2025 niður í 33 árið 2027 samkvæmt gögnum Cruise Iceland. Hringferðum leiðangursskipa milli áranna 2025 og 2027 fækkar því um 42%. Samdráttur fyrir árið 2026 er óverulegur, vegna sólmyrkvans. Sigurður Jökull Ólafsson Þetta kemur harðast niður á minni höfnum og áfangastöðum eins og Borgarfirði eystri, Djúpavogi, Húsavík, Patreksfirði, Siglufirði, Stykkishólmi, Djúpavík á Ströndum, Grímsey og fleiri bæjarfélögum um landið allt, segir Sigurður. Mikið er í húfi að mati Sigurðar. Sem dæmi megi nefna að skemmtiferðaskipin skiluðu um 6,9 milljörðum króna til hafna, sveitarfélaga og í ríkissjóð árið 2025, að ótöldum þeim tekjum sem þau skiluðu inn í atvinnulíf hvers svæðis fyrir sig. Fólk treystir á farþegaskipin Fjöldi fólks treysti á að skipin haldi áfram að heimsækja byggðir sem oft hafa fáa aðra kosti til lífsviðurværis og atvinnuþróunar. Í fyrra heimsóttu skemmtiferðaskipin 33 hafnir og áfangastaði í 1.182 heimsóknum. Alls fluttu skipin 333.394 farþega sem dreifðust vel um landið allt. Sigurður Jökull bendir á að heildarfjöldi skemmtiferðaskipa á heimsvísu takmarkist við rúmlega 400 skip. Þess vegna eru ákvarðanir um það hvaða áfangastaðir verða í ferðaáætlun hvers skips ekki teknar nema að mjög vel ígrunduðu máli. Ákvörðun um það í hvaða heimshluta eigi að staðsetja skipin er tekin 3-4 ár fram í tímann. Því næst eru þær hafnir bókaðar sem heimsóttar verða, afþreying og ferðir í landi sömuleiðis og að öllu því loknu eru ferðir markaðsettar til neytenda með um tveggja ára fyrirvara. Þetta langa ferli geri það að verkum að það geta liðið allt að fjögur ár frá ákvörðun um áfangastað þangað til ferðamaður stígur loks í land. „Samdrátturinn 2027 er því bein afleiðing ákvarðana stjórnvalda á árunum 2023-2025,“ segir Sigurður að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Telur að farið sé á svig við lög Telja hvalshræið ekki með Nudd og hundleiðinlegt veður Viskí til bjargar villtum stofnum Vildi sjá magntölur í janúar Hoppandi kátir með upphaf vertíðar Þorskhausar skipuðu áður stærri sess Man myrkrið þegar skipin fóru Bæta þarf skráningu á gerð veiðarfæra Fyrsta áfanga að ljúka hjá First Water Man myrkrið þegar skipin fóru Telja hvalshræið ekki með Hoppandi kátir með upphaf vertíðar Þorskhausar skipuðu áður stærri sess Eins ferskur fiskur og kostur er Bæta þarf skráningu á gerð veiðarfæra Fyrsta áfanga að ljúka hjá First Water Eru að byrja á norsk-íslensku síldinni „Algjört rof“ milli fólks og sjávarútvegs Makrílvertíð lokið og hugað að síld „Algjört rof“ milli fólks og sjávarútvegs Man myrkrið þegar skipin fóru Meitlaði í texta tíma sem er horfinn Leiðangursskip flýja VSK-kerfið Telja hvalshræið ekki með Áhöfn verður að hafa gilt vottorð Telur að farið sé á svig við lög Sér möguleika í vetrarsiglingum Íslenskur þari og hefðir Hong Kong Hoppandi kátir með upphaf vertíðar Fleira áhugavert Heitasti mánuður sem mælst hefur um allan heim „Þetta er nú meira ástandið“ 3,2 milljarða halli á rekstri borgarinnar Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 10.9.26 706,10 kr/kg Þorskur, slægður 10.9.26 748,10 kr/kg Ýsa, óslægð 10.9.26 537,38 kr/kg Ýsa, slægð 10.9.26 546,94 kr/kg Ufsi, óslægður 10.9.26 360,01 kr/kg Ufsi, slægður 10.9.26 437,71 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 10.9.26 332,09 kr/kg Litli karfi 1.9.26 5,00 kr/kg Blálanga, óslægð 9.9.26 203,35 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 10.9.26 Smári ÓF 20 Handfæri Þorskur 434 kg Ufsi 2 kg Karfi 2 kg Samtals 438 kg 10.9.26 Núpur BA 69 Lína Langa 4.495 kg Keila 1.423 kg Steinbítur 811 kg Ufsi 714 kg Hlýri 405 kg Þorskur 240 kg Karfi 226 kg Ýsa 86 kg Skarkoli 63 kg Samtals 8.463 kg 10.9.26 Páll Pálsson ÍS 102 Botnvarpa Ýsa 1.700 kg Samtals 1.700 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Telur að farið sé á svig við lög Telja hvalshræið ekki með Nudd og hundleiðinlegt veður Viskí til bjargar villtum stofnum Vildi sjá magntölur í janúar Hoppandi kátir með upphaf vertíðar Þorskhausar skipuðu áður stærri sess Man myrkrið þegar skipin fóru Bæta þarf skráningu á gerð veiðarfæra Fyrsta áfanga að ljúka hjá First Water Man myrkrið þegar skipin fóru Telja hvalshræið ekki með Hoppandi kátir með upphaf vertíðar Þorskhausar skipuðu áður stærri sess Eins ferskur fiskur og kostur er Bæta þarf skráningu á gerð veiðarfæra Fyrsta áfanga að ljúka hjá First Water Eru að byrja á norsk-íslensku síldinni „Algjört rof“ milli fólks og sjávarútvegs Makrílvertíð lokið og hugað að síld „Algjört rof“ milli fólks og sjávarútvegs Man myrkrið þegar skipin fóru Meitlaði í texta tíma sem er horfinn Leiðangursskip flýja VSK-kerfið Telja hvalshræið ekki með Áhöfn verður að hafa gilt vottorð Telur að farið sé á svig við lög Sér möguleika í vetrarsiglingum Íslenskur þari og hefðir Hong Kong Hoppandi kátir með upphaf vertíðar Fleira áhugavert Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Svona gæti gervigreind nýst á hjúkrunarheimilum Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 10.9.26 706,10 kr/kg Þorskur, slægður 10.9.26 748,10 kr/kg Ýsa, óslægð 10.9.26 537,38 kr/kg Ýsa, slægð 10.9.26 546,94 kr/kg Ufsi, óslægður 10.9.26 360,01 kr/kg Ufsi, slægður 10.9.26 437,71 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 10.9.26 332,09 kr/kg Litli karfi 1.9.26 5,00 kr/kg Blálanga, óslægð 9.9.26 203,35 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 10.9.26 Smári ÓF 20 Handfæri Þorskur 434 kg Ufsi 2 kg Karfi 2 kg Samtals 438 kg 10.9.26 Núpur BA 69 Lína Langa 4.495 kg Keila 1.423 kg Steinbítur 811 kg Ufsi 714 kg Hlýri 405 kg Þorskur 240 kg Karfi 226 kg Ýsa 86 kg Skarkoli 63 kg Samtals 8.463 kg 10.9.26 Páll Pálsson ÍS 102 Botnvarpa Ýsa 1.700 kg Samtals 1.700 kg Skoða allar landanir »

Share this article