Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Það sendir kolröng skilaboð“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 10.9.2026 | 20:38 „Það sendir kolröng skilaboð“ Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp sitt í vikunni. Kristrún Frostadóttir og aðrir leiðtogar meirihlutans mættu einnig. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Undanþágur ekki það sama og glufur Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Gagnrýna 100 prósenta hækkun komugjalda Vill heimild til að selja Haga Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu » Fleiri tengdar fréttir Stjórn Félags atvinnurekenda (FA) gagnrýnir harðlega þá aðferð að krónutölugjöld ríkisins hækki almennt um 5,2% og telur hana ýta undir verðbólgu og verðbólguvæntingar. Þetta kemur fram í ályktun stjórnarinnar um fjárlagafrumvarp næsta árs sem samþykkt var á stjórnarfundi í dag. FA segir þetta þvert á markmið fjárlagafrumvarpsins. Nær hefði verið að miða við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. „Bankinn leitast við að ná því markmiði, meðal annars með háum vöxtum, en á sama tíma notar ríkisstjórnin 5,2% verðbólgu sem viðmið við hækkun gjalda. Það sendir kolröng skilaboð, meðal annars inn á vinnumarkaðinn þar sem forsendur kjarasamninga geta verið í uppnámi vegna verðbólgunnar,“ segir í ályktuninni. Þar segir að fjárlagafrumvarpið valdi vonbrigðum þó að þar sé að finna ljósa punkta. Fagnaðarefni sé að ríkisstjórnin ætli loksins að stöðva hallarekstur ríkissjóðs og sérstaklega jákvætt að ráðist sé í hagræðingu og fækkun stöðugilda. Jafnvægi í ríkisfjármálum sé ein mikilvægasta forsenda lægri verðbólgu og vaxta. Hins vegar valdi vonbrigðum að ríkisstjórnin skuli ekki ganga lengra í aðhaldi á útgjaldahliðinni og kjósi þess í stað að sækja tugi milljarða í nýjar álögur, meðal annars með hækkun kílómetragjalds og aukinni skattlagningu á atvinnulífið. „FA hefur lengi stutt að virðisaukaskattkerfið verði einfaldað og undanþágum fækkað, en þá er lykilatriði að skattprósentan lækki á móti. Félagið hvetur til slíkrar heildarendurskoðunar á kerfinu í stað smáskammtalækninga eins og þeirra sem lagðar eru til í frumvarpinu.“ Þá vekur FA athygli á því að áformuð 1% fækkun stöðugilda hjá ríkinu sé aðeins um einn sjötti af þeirri árlegu starfsmannaveltu sem rannsóknir benda til að sé að jafnaði í opinberri þjónustu. Hún kunni jafnframt að vera minni en sá fjöldi ríkisstarfsmanna sem lætur af störfum vegna aldurs á árinu. „Því hefði átt að vera svigrúm til að setja mun metnaðarfyllra markmið um fækkun án þess að grípa þyrfti til umfangsmikilla uppsagna. Stöðugildum hjá ríkinu hefur fjölgað um 3.400 frá árinu 2019. Fjölgunin er hlutfallslega tvöföld á við mannfjöldaþróun. Spyrna þarf fastar við fótum til að vinda ofan af þessari ósjálfbæru þróun.“ Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Undanþágur ekki það sama og glufur Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Gagnrýna 100 prósenta hækkun komugjalda Vill heimild til að selja Haga Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stórsigur United í fyrsta leik Í fimmta sæti á EM „Það sendir kolröng skilaboð“ Þórsarar komnir á blað Innihaldslaus frasi að segja reksturinn traustan Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Gæti margfaldað orkuna Handvirk vinna á landamærum hægir á öllu ferlinu Birta ekki dóma yfir sjálfum sér Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Nýjast á mbl.is » Stórsigur United í fyrsta leik Í fimmta sæti á EM „Það sendir kolröng skilaboð“ Þórsarar komnir á blað Innihaldslaus frasi að segja reksturinn traustan Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svona gæti gervigreind nýst á hjúkrunarheimilum Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Handvirk vinna á landamærum hægir á öllu ferlinu Brotalöm í kennslu erlendra barna Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu

Share this article