- What: USA defeated Hungary in 8-team semifinals
- Impact: Basketball match results from tournament
Hinir leikir 8-liða úrslitanna voru spilaðir fyrr í dag og fyrst mættust Bandaríkin og Ungverjaland. Þar sáu Ungverjar aldrei til sólar á móti frábæru bandarísku liði. 24 stigum munaði á liðunum strax eftir fyrsta fjórðung og sá munur jókst svo eftir því sem leið á leikinn. Napheesa Collier skoraði 19 stig og tók sjö fráköst að auki fyrir Bandaríkin sem unnu Ungverja með 52 stiga mun, algjört burst. Úrslitin urðu 108-56 og Bandaríkin eru þar með komin í undanúrslit og mætir þar Spánverjum. Kína og Frakkland mættust í öðrum leik dagsins í 8-liða úrslitunum og þvar var nokkuð jafnræði í fyrsta leikhluta áður en Frakkar spóluðu fyrir kínverska liðið. Marinne Johannes skoraði 15 stig og gaf sjö stoðsendingar í sterku frönsku liði sem vann það kínverska með 29 stiga mun, 90-61. Frakkar leika við heimakonur í Þýskalandi í undanúrslitum á laugardag en Þjóðverjar unnu Belga nú áðan með 19 stiga mun í leik sem endaði 93-74 fyrir þýska liðið. Undanúrslitaleikirnir verða spilaðir á laugardag og sýndir á RÚV 2 og leikið verður svo til verðlauna á HM á sunnudag.