- What: Appointment of new CEO for state-owned transport company
- Impact: Company management
Innviðafélagið Göng og brú ohf. hefur ráðið Guðmund Daða Rúnarsson í starf forstjóra félagsins. Ákvörðun um ráðninguna var tekin af stjórn félagsins að undangengnu opnu ráðningarferli, að því er segir í fréttatilkynningu. Kynna félagið í næstu viku Göng og brú er innviðafélag í eigu íslenska ríkisins. Félagið var stofnað í sumar á grunni Vaðlaheiðarganga hf. í kjölfar þess að Alþingi samþykkti lög um innviðafélag í júní. Tilgangur hins sjálfstæða rekstrar-, fjármögnunar- og eignarhaldsfélags er að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum, skapa farveg fyrir stöðuga fjármögnun slíkra verkefna og tryggja hagkvæma, faglega og skilvirka verkefnastjórn við undirbúning og framkvæmd þeirra. Göng og brú hafa boðað til kynningar- og markaðsdags í Hörpu þann 17. september klukkan 13:30 þar sem hlutverk og tilgangur félagsins verður kynntur nánar. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mun flytja ávarp á fundinum þar sem fjallað verður um stofnun, umboð og framtíðarsýn stjórnvalda í uppbyggingu innviða og hvert hlutverk félagsins er í þeirri uppbyggingu. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins verða einnig með erindi á fundinum. Guðmundur Daði, nýr forstjóri félagsins, kemur frá Isavia þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli. Guðmundur Daði sinnti fjölbreyttum stjórnunarstörfum hjá Isavia og leiddi uppbyggingu og framkvæmdir flugvallarins samfleytt frá 2016. Guðmundur Daði er verkfræðingur að mennt frá Danska Tækniháskólanum í Kaupmannahöfn. „Guðmundur Daði tekur við stjórn félagsins á þeim tímamótum þar sem byggja þarf upp getu félagsins til að taka að sér uppbyggingu innviða sem munu auka öryggi og bæta samgöngur um land allt,“ segir í tilkynningunni. „Ég er þakklátur fyrir traustið og hlakka til að leiða innviðafélagið Göng og brú. Mér líst vel á upplegg ríkisstjórnarinnar um að flýta uppbyggingu á stærri samgönguinnviðum með þessum hætti. Þá tel ég að reynsla mín frá Isavia af því að leiða uppbyggingu innviða og ljúka framkvæmdum á réttum tíma, og á kostnaðaráætlun, muni nýtast vel á þessum nýja vettvangi,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson nýráðinn forstjóri Ganga og brúar. „Við hefjum leika strax í næstu viku með kynningar- og markaðsdegi Ganga og brúar þar sem verða fulltrúar frá fjölda erlendra og innlendra aðila. Ég veit að það er mikill áhugi á verkefnum félagsins og við förum hratt af stað.“