Verð á dísilolíu í Bandaríkjunum fór í dag í fyrsta sinn yfir 6 dali á gallonið. Meðalverð á landsísu er nú 63% hærra en á sama tíma í fyrra samkvæmt gögnum bandaríska bifreiðaeigendasambandsins AAA. Verðið er enn hærra í Kaliforníu, stærsta landbúnaðarríki Bandaríkjanna, en þar kostar gallonið 7,9827 dali. Eldsneytiskostnaður hefur hækkað verulega í kjölfar stigmögnunar átaka milli Bandaríkjanna og Írans. Verð á Brent-hráolíu fór á í gær yfir 100 dali á tunnu í fyrsta sinn síðan í maí en stendur í 99,1 dali þegar fréttin er skrifuð. Viðmælandi CNBC sem starfar sem greinandi á orkumarkaði hjá GasBuddy sagði að hátt dísilverð yrði „þögull morðingi“ (e. silent killer) fyrir hagkerfið. Stríðin í Íran og Úkraínu hafa leitt af sér minna eldsneytisframboð á heimsvísu. Í umfjöllun CNBC er bent á að Úkraínumenn hafi gert umfangsmiklar árásir á rússneskar olíuhreinsistöðvar og neytt rússnesk stjórnvöld til að banna útflutning á dísilolíu. Íran og bandamenn þeirra, Hútar í Jemen, hafa einnig gert árásir á olíuhreinsistöðvar bandalagsríkja Bandaríkjanna við Persaflóa. Útflutningur eldsneytis um Hormússund sé einnig takmarkaður vegna árása Írana á olíuflutningaskip. Stríðsátök í Austur-Evrópu og Mið-Austurlöndum hafa leitt til lokunar olíuhreinsistöðva með afköst upp á samtals fimm milljónir tunna á dag. Áætlað er að framboð á dísilolíu á heimsvísu hafi dregist saman um 8%.