Meðalverð á dísilolíu í Bandaríkjunum náði sögulegu hámarki í dag þegar það fór í 5,85 dali á gallon. Það jafngildir um 1,55 dölum, eða 187 krónum, á lítra miðað við núverandi gengi. Á vef New York Times er vitnað í tölur frá bandaríska bifreiðafélaginu AAA. Verðið hefur hækkað um meira en 55% frá því stríðið í Íran braust út í lok febrúar og er nú hærra en það var í orkukrísunni sem fylgdi innrás Rússa í Úkraínu fyrir fjórum árum. Aðrar olíuvörur hafa einnig rokið upp í verði en meðalverð á bensíni í Bandaríkjunum er nú 4,15 dalir á gallon, eða um 133 krónur á lítra. Það er nærri 40% hærra en fyrir stríð. Tunnuverð á Brent-hráolíu var í kringum 96 dali í dag og hefur hækkað um 30% frá upphafi stríðs. Sjá einnig Olíusjóðurinn vill minnka stöðu í bandarískum ríkisbréfum Þróunin hefur haft töluverð áhrif á atvinnulíf í Bandaríkjunum en dísilolía er notuð á fjölda atvinnubifreiða og vinnuvéla, þar á meðal landbúnaðarvélar og vöruflutningabíla. Verðhækkunin hefur því aukið kostnað fyrirtækja við meðal annars rekstur og flutninga. Warren Patterson, yfirmaður hrávörugreiningar hjá ING, segir að hátt eldsneytisverð muni haldast jafnvel þótt stríðsátökum ljúki og hráolíuverð lækki. „Olíumarkaðurinn er enn þröngur, en markaðir fyrir hreinsaðar olíuvörur eru enn þrengri.“