Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Starfsmenn krefjast afsagnar stjórnar SÁÁ

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.9.2026 | 14:11 Starfsmenn krefjast afsagnar stjórnar SÁÁ Deilan á Vogi stigmagnaðist þegar nær allir starfsmenn krefjast afsagnar formanns og framkvæmdastjórnar. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Starfsmenn SÁÁ hafa sent frá sér vantraustsyfirlýsingu á formann og framkvæmdastjórn samtakanna og krefjast þess að þau víki. Morgunblaðið greindi frá því í dag að Ásmundur Friðriksson hefði sagt sig úr stjórninni vegna ágreinings við meirihluta stjórnar og í kjölfarið kemur þessi vantraustsyfirlýsing. Í yfirlýsingunni kemur fram að sú alvarlega staða sem nú er komin upp innan SÁÁ verði að þeirra mati ekki skýrð sem eðlilegar breytingar í stjórnun eða einstök starfsmannamál. Á skömmum tíma hafa lykilstjórnendur heilbrigðis- og meðferðarstarfs SÁÁ horfið frá störfum og fráfarandi stjórnendur lýst alvarlegum áhyggjum af afskiptum stjórnar af faglegu starfi samtakanna. Frétt af mbl.is Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ Frétt af mbl.is Grafalvarleg og sorgleg staða SÁÁ Standa með stjórnendum „Áður en þessi atburðarás hófst var staðan innan SÁÁ að okkar mati góð. Við vorum stolt af þeirri uppbyggingu og framþróun sem hafði átt sér stað og ánægð með þá stefnu sem unnið var eftir undir forystu Ragnheiðar. Nýir samningar voru mikilvægur áfangi og mikill sigur fyrir starfsemina. Með þeim opnuðust tækifæri til frekari þróunar og eflingar þjónustunnar sem starfsfólk var bæði stolt af og spennt að taka þátt í að innleiða. Starfsánægja hafði að okkar mati aldrei verið meiri og ríkur vilji var meðal starfsfólks til að halda áfram þeirri vinnu sem hafin var.“ Snýst um stjórnarhætti Það veldur starfsmönnum miklum áhyggjum að sú uppbygging, samstaða og jákvæða þróun sem náðst hafði skuli nú vera í hættu. Þeir vilja fá að halda áfram á þeirri faglegu stefnu sem mörkuð hafði verið og byggja áfram á þeim árangri sem náðst hafði undir forystu Ragnheiðar og annarra faglegra stjórnenda. „Yfirlýsingar Valgerðar Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga, vega þungt í þessu samhengi. Þegar einn reynslumesti læknir landsins á sviði fíknimeðferðar og framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ lýsir því opinberlega að afskipti stjórnar af faglegu heilbrigðisstarfi séu óviðunandi og treystir sér ekki lengur til að starfa við þær aðstæður sem stjórn samtakanna hyggst skapa, teljum við ekki unnt að líta fram hjá því.“ Starfsmennirnir telja að málið snúist því ekki eingöngu um ágreining einstaklinga. Það snúist um stjórnarhætti SÁÁ, faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins og framtíð þeirrar mikilvægu þjónustu sem samtökunum hefur verið treyst fyrir. „Starfsfólk SÁÁ ber daglega ríka ábyrgð gagnvart sjúklingum og aðstandendum þeirra. Við störfum samkvæmt faglegum og siðferðilegum skyldum og teljum okkur því verða að bregðast við þegar ákvarðanir og stjórnarhættir kunna að ógna faglegri samfellu, starfsfriði og trausti innan samtakanna.“ Kallar á skýr svör Í yfirlýsingunni kemur fram að brottför reynslumikilla lykilstjórnenda, samhliða alvarlegum áhyggjum þeirra af afskiptum stjórnar af faglegu starfi, kalli á skýr svör. „Að okkar mati hefur starfsfólki ekki verið veitt fullnægjandi skýring á því hvernig þessi staða varð til, hvar ábyrgðin liggur eða hvernig tryggja eigi faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins til framtíðar. Traust verður ekki endurreist með því einu að lýsa yfir að starfsemin haldi áfram. Það byggist á gagnsæi, ábyrgð, trúverðugum upplýsingum og virðingu fyrir faglegum mörkum. Að okkar mati hefur traustið nú brostið.“ Starfsmennirnir kalla eftir því að aðalstjórn SÁÁ taki þegar í stað til formlegrar umfjöllunar ábyrgð formanns og framkvæmdastjórnar á þeirri atburðarás sem leitt hefur til núverandi stöðu og grípi til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru til að endurreisa traust innan samtakanna. „Jafnframt teljum við nauðsynlegt að tryggt verði með skýrum hætti að stjórn félagsins virði faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfs SÁÁ. Ákvarðanir sem varða faglega starfsemi, skipulag hennar og stjórnun verða að vera teknar í eðlilegu og raunverulegu samráði við þá faglegu stjórnendur sem bera ábyrgð á þjónustunni. SÁÁ eru ekki aðeins félagasamtök. Innan samtakanna er rekin umfangsmikil heilbrigðisþjónusta fyrir viðkvæman sjúklingahóp. Þeir sem fara með stjórn samtakanna bera því ríka ábyrgð á að ákvarðanir þeirra raski hvorki faglegu sjálfstæði né öryggi og samfellu þjónustunnar eða því trausti sem starfsemin byggist á.“ Ekki sett fram af léttúð Að lokum taka starfsmennirnir það fram að vantraustyfirlýsingin sé ekki sett fram af neinni léttúð. „Við gerum það vegna þess að við teljum okkur bera skyldu til að standa vörð um sjúklinga okkar, samstarfsfólk, faglegt heilbrigðisstarf og framtíð SÁÁ. Við viljum sjá SÁÁ halda áfram á þeirri faglegu og framsæknu braut sem mörkuð hafði verið og byggja áfram á þeim árangri, metnaði og starfsánægju sem einkenndi starfsemina áður en núverandi staða kom upp. Traust okkar til formanns og framkvæmdastjórnar SÁÁ er brostið. Aðalstjórn verður nú að bregðast við. Þau sem undirrituðu vantraustyfirlýsinguna eru eftirfarandi: Helga Katrín Jónsdóttir læknir Elín Þórdís Meldal áfengis- og vímuefnaráðgjafi, aðstoðarfagstjóri Kristjana Gyða Pétursdóttir, móttökuritari Helga Brynja áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Sandra Dögg Björnsdóttir sjúkraliði Jónína Sigrún Birgisdóttir sálfræðingur Benjamín Gíslason áfengis- og vímuefnaráðgjafi Axel Wilhelm Einarsson hjúkrunarfræðingur Katrín Ella Jónsdóttir sálfræðingur, fagstjóri sálfélagslegrar meðferðar Kristbjörg Kona áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Hafsteinn Sæmundsson næturvörður Emilija Aleksandraviciene sjúkraliði Gunnhildur Óskarsdóttir sjúkraliði Edric Jaben læknir Rúna Sif Harðardóttir félagsráðgjafi Karen Birna V. Ómarsdóttir félagsráðgjafi Helga Agnes Björnsdóttir sjúkraliði Hildur Ósk Ragnarsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Benedikt Guðnason áfengis- og vímuefnaráðgjafi Sara Mjöll Vatnar Skjaldardóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi Trausti Einarsson áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Guðný Björg Helgadóttir hjúkrunarfræðingur Halldóra Róbertsdóttir hjúkrunarfræðinemi Bryndís Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur, aðstoðarfagstjóri Ael Nabetse hjúkrunarfræðingur Sandra Kristín Björnsdóttir móttökuritari Erla Dögg Héðinsdóttir móttökuritari Signý Sigurðardóttir sálfræðingur Gunnhildur Hafþórsdóttir Blöndal hjúkrunarfræðingur Oddur Sigurjónsson áfengis- og vímuefnaráðgjafi Júlí Aspelund fagstjóri fræðslu og þjálfunar Baldvin Þór Þorsteinsson áfengis- og vímuefnaráðgjafi Nanna Björk Elvarsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Tinna Jónsdóttir sjúkraliði Aníta Ösp læknir Katla Sigríður Gísladóttir læknanemi Vilborg Þórsdóttir sjúkraliði Birta Dís Lárusdóttir sálfræðingur Júlíus Fannar Pálsson næturvörður Svanur Þorláksson áfengis- og vímuefnaráðgjafi Steingerður Björk Pétursdóttir sjúkraliði Dagrún Þórný Marínardóttir heilbrigðisgagnafræðingur Sigfríður Birna Sigmarsdóttir sjúkraliði Rósa Diljá Gísladóttir hjúkrunarfræðingur Kristín Maggý Erlingsdóttir sjúkraliði Björn Björnsson áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Margrét Erla Þorláksdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi Bjarney Rós Guðmundsdóttir félagsráðgjafi Ólafur Guðmundsson læknir, fagstjóri lækninga Þóra G. Þórisdóttir sjúkraliði Ólöf Kristjánsdóttir sjúkraliði Kolbrún Brynja áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Selja Dís Jónsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Árný Inga Guðjónsdóttir sjúkraliði Guðbjörg Drengsdóttir sjúkraliði Guðlaug Dóra Þorsteinsdóttir sjúkraliði Rakel Sif deildarstjóri ritunar Ninja Elín Maggadóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Herdís Rún Tómasdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Borghildur Hauksdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Silja Jónsdóttir sálfræðingur Hekla Líf Júlíusdóttir sjúkraliði Thelma Rut Jónsdóttir sjúkraliði Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vilja afnema sérréttindi opinberra starfsmanna Starfsmenn krefjast afsagnar stjórnar SÁÁ Uppselt hjá Aftureldingu og gamla stúkan nýtt Received benefits without having worked in Iceland Ostóber hefst með óvæntri ostaveislu Umræðan Fiðrildaáhrif og lítil korn „… miðar að því að draga úr vægi verðtryggingar“ – fyrir hvern? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Starfsmenn krefjast afsagnar stjórnar SÁÁ Dagur sem enginn gleymir Þiggja fé án þess að vinna handtak Beint: Minningarathöfn í New York Mest lesið Í gær Í vikunni Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Minningarstund um Hönnuh Jane Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ Lýsir alvarlegri stöðu borgarinnar „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Sprengingar hefjast í Garðabæ í dag Flugvirkjar Icelandair greiða atkvæði um vinnustöðvun Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Eldur í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Þiggja fé án þess að vinna handtak Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » Vilja afnema sérréttindi opinberra starfsmanna Starfsmenn krefjast afsagnar stjórnar SÁÁ Uppselt hjá Aftureldingu og gamla stúkan nýtt Received benefits without having worked in Iceland Ostóber hefst með óvæntri ostaveislu Umræðan Fiðrildaáhrif og lítil korn „… miðar að því að draga úr vægi verðtryggingar“ – fyrir hvern? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Nokkuð miklar áskoranir hjá Hafnarfjarðarbæ“ Tæplega 600 milljarða kostnaður Sprengingar hefjast í Garðabæ í dag Kourani afplánaði þriðjung dómsins Mest lesið Í gær Í vikunni Þi

Share this article