Hópur starfsmanna hjá Samtökum áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann (SÁÁ) lýsti í dag yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn samtakanna. „Sú alvarlega staða sem nú er komin upp innan SÁÁ verður að okkar mati ekki skýrð sem eðlilegar breytingar í stjórnun eða einstök starfsmannamál. Á skömmum tíma hafa lykilstjórnendur heilbrigðis- og meðferðarstarfs SÁÁ horfið frá störfum og fráfarandi stjórnendur lýst alvarlegum áhyggjum af afskiptum stjórnar af faglegu starfi samtakanna,“ stendur í yfirlýsingunni sem á sjöunda tug starfsmanna rita undir. Stjórnendur sögðu upp störfum Gustað hefur um SÁÁ að undanförnu. Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, forstjóri SÁÁ, og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur, sögðu upp störfum í ágúst. Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, sagði því næst starfi sínu lausu. Hún sagði stjórn SÁÁ hafa skipt sér af faglegu heilbrigðisstarfi og sagðist ekki treysta sér til að vinna faglegt heilbrigðisstarf undir nýjum utanaðkomandi forstjóra. „Brottför reynslumikilla lykilstjórnenda, samhliða alvarlegum áhyggjum þeirra af afskiptum stjórnar af faglegu starfi, kallar á skýr svör. Að okkar mati hefur starfsfólki ekki verið veitt fullnægjandi skýring á því hvernig þessi staða varð til, hvar ábyrgðin liggur eða hvernig tryggja eigi faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins til framtíðar,“ skrifa starfsmenn SÁÁ. Segja samstöðu í hættu Starfsmennirnir segja að áður en atburðarásin hófst hafi staðan innan SÁÁ verið góð – starfsánægja verið mikil og ríkur vilji meðal starfsfólks til að halda áfram þeirri vinnu sem hafin var. „Það veldur okkur því miklum áhyggjum að sú uppbygging, samstaða og jákvæða þróun sem náðst hafði skuli nú vera í hættu. Við viljum fá að halda áfram á þeirri faglegu stefnu sem mörkuð hafði verið og byggja áfram á þeim árangri sem náðst hafði undir forystu Ragnheiðar [Huldu Friðriksdóttur, fyrrverandi forstjóra] og annarra faglegra stjórnenda.“ Þau segja að ekki sé unnt að líta fram hjá ummælum Valgerðar Rúnarsdóttur um að hún treysti sér ekki lengur til að starfa við aðstæður sem stjórn samtakanna hyggist skapa. „Málið snýst því ekki eingöngu um ágreining einstaklinga. Það snýst um stjórnarhætti SÁÁ, faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins og framtíð þeirrar mikilvægu þjónustu sem samtökunum hefur verið treyst fyrir.“ Starfsmennirnir segja sig knúna til að bregðast við þegar ákvarðanir og stjórnarhættir „kunna að ógna faglegri samfellu, starfsfriði og trausti innan samtakanna“. Vilja að aðalstjórn SÁÁ grípi til aðgerða Starfsmenn óska eftir því að aðalstjórn SÁÁ taki ábyrgð formanns og framkvæmdastjórnar á þeirri atburðarás sem leitt hefur til núverandi stöðu strax til formlegrar umfjöllunar. Þá óska þeir eftir því að gripið verði til nauðsynlegra aðgerða til að endurreisa traust innan samtakanna. „SÁÁ eru ekki aðeins félagasamtök. Innan samtakanna er rekin umfangsmikil heilbrigðisþjónusta fyrir viðkvæman sjúklingahóp. Þeir sem fara með stjórn samtakanna bera því ríka ábyrgð á að ákvarðanir þeirra raski hvorki faglegu sjálfstæði né öryggi og samfellu þjónustunnar eða því trausti sem starfsemin byggist á. Við lýsum ekki yfir vantrausti af léttúð. Við gerum það vegna þess að við teljum okkur bera skyldu til að standa vörð um sjúklinga okkar, samstarfsfólk, faglegt heilbrigðisstarf og framtíð SÁÁ.“ Vantraustsyfirlýsing starfsmannanna Við undirrituð, starfsmenn SÁÁ, lýsum yfir vantrausti á formann SÁÁ og framkvæmdastjórn samtakanna. Sú alvarlega staða sem nú er komin upp innan SÁÁ verður að okkar mati ekki skýrð sem eðlilegar breytingar í stjórnun eða einstök starfsmannamál. Á skömmum tíma hafa lykilstjórnendur heilbrigðis- og meðferðarstarfs SÁÁ horfið frá störfum og fráfarandi stjórnendur lýst alvarlegum áhyggjum af afskiptum stjórnar af faglegu starfi samtakanna. Áður en þessi atburðarás hófst var staðan innan SÁÁ að okkar mati góð. Við vorum stolt af þeirri uppbyggingu og framþróun sem hafði átt sér stað og ánægð með þá stefnu sem unnið var eftir undir forystu Ragnheiðar. Nýir samningar voru mikilvægur áfangi og mikill sigur fyrir starfsemina. Með þeim opnuðust tækifæri til frekari þróunar og eflingar þjónustunnar sem starfsfólk var bæði stolt af og spennt að taka þátt í að innleiða. Starfsánægja hafði að okkar mati aldrei verið meiri og ríkur vilji var meðal starfsfólks til að halda áfram þeirri vinnu sem hafin var. Það veldur okkur því miklum áhyggjum að sú uppbygging, samstaða og jákvæða þróun sem náðst hafði skuli nú vera í hættu. Við viljum fá að halda áfram á þeirri faglegu stefnu sem mörkuð hafði verið og byggja áfram á þeim árangri sem náðst hafði undir forystu Ragnheiðar og annarra faglegra stjórnenda. Yfirlýsingar Valgerðar Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga, vega þungt í þessu samhengi. Þegar einn reynslumesti læknir landsins á sviði fíknimeðferðar og framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ lýsir því opinberlega að afskipti stjórnar af faglegu heilbrigðisstarfi séu óviðunandi og treystir sér ekki lengur til að starfa við þær aðstæður sem stjórn samtakanna hyggst skapa, teljum við ekki unnt að líta fram hjá því. Málið snýst því ekki eingöngu um ágreining einstaklinga. Það snýst um stjórnarhætti SÁÁ, faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins og framtíð þeirrar mikilvægu þjónustu sem samtökunum hefur verið treyst fyrir. Starfsfólk SÁÁ ber daglega ríka ábyrgð gagnvart sjúklingum og aðstandendum þeirra. Við störfum samkvæmt faglegum og siðferðilegum skyldum og teljum okkur því verða að bregðast við þegar ákvarðanir og stjórnarhættir kunna að ógna faglegri samfellu, starfsfriði og trausti innan samtakanna. Brottför reynslumikilla lykilstjórnenda, samhliða alvarlegum áhyggjum þeirra af afskiptum stjórnar af faglegu starfi, kallar á skýr svör. Að okkar mati hefur starfsfólki ekki verið veitt fullnægjandi skýring á því hvernig þessi staða varð til, hvar ábyrgðin liggur eða hvernig tryggja eigi faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins til framtíðar. Traust verður ekki endurreist með því einu að lýsa yfir að starfsemin haldi áfram. Það byggist á gagnsæi, ábyrgð, trúverðugum upplýsingum og virðingu fyrir faglegum mörkum. Að okkar mati hefur traustið nú brostið. Við köllum eftir því að aðalstjórn SÁÁ taki þegar í stað til formlegrar umfjöllunar ábyrgð formanns og framkvæmdastjórnar á þeirri atburðarás sem leitt hefur til núverandi stöðu og grípi til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru til að endurreisa traust innan samtakanna. Jafnframt teljum við nauðsynlegt að tryggt verði með skýrum hætti að stjórn félagsins virði faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfs SÁÁ. Ákvarðanir sem varða faglega starfsemi, skipulag hennar og stjórnun verða að vera teknar í eðlilegu og raunverulegu samráði við þá faglegu stjórnendur sem bera ábyrgð á þjónustunni. SÁÁ eru ekki aðeins félagasamtök. Innan samtakanna er rekin umfangsmikil heilbrigðisþjónusta fyrir viðkvæman sjúklingahóp. Þeir sem fara með stjórn samtakanna bera því ríka ábyrgð á að ákvarðanir þeirra raski hvorki faglegu sjálfstæði né öryggi og samfellu þjónustunnar eða því trausti sem starfsemin byggist á. Við lýsum ekki yfir vantrausti af léttúð. Við gerum það vegna þess að við teljum okkur bera skyldu til að standa vörð um sjúklinga okkar, samstarfsfólk, faglegt heilbrigðisstarf og framtíð SÁÁ. Við viljum sjá SÁÁ halda áfram á þeirri faglegu og framsæknu braut sem mörkuð hafði verið og byggja áfram á þeim árangri, metnaði og starfsánægju sem einkenndi starfsemina áður en núverandi staða kom upp. Traust okkar til formanns og framkvæmdastjórnar SÁÁ er brostið. Aðalstjórn verður nú að bregðast við. Undirritað: Helga Katrín Jónsdóttir læknir Elín Þórdís Meldal áfengis og vímuefnaráðgjafi, aðstoðarfagstjóri Kristjana Gyða Pétursdóttir, móttökuritari Helga Brynja áfengis og vímuefnaráðgjafanemi Sandra Dögg Björnsdóttir sjúkraliði Jónína Sigrún Birgisdóttir sálfræðingur Benjamín Gíslason áfengis og vímuefnaráðgjafi Axel Wilhelm Einarsson hjúkrunarfræðingur Katrín Ella Jónsdóttir sálfræðingur,fagstjóri sálfélagslegrar meðferðar Kristbjörg Kona áfengis og vímuefnaráðgjafanemi Hafsteinn Sæmundsson næturvörður Emilija Aleksandraviciene sjúkraliði Gunnhildur Óskarsdóttir sjúkraliði Edric Jaben læknir Rúna Sif Harðardóttir félagsráðgjafi Karen Birna V. Ómarsdóttir félagsráðgjafi Helga Agnes Björnsdóttir sjúkraliði Hildur Ósk Ragnarsdóttir áfengis og vímuefnaráðgjafanemi Benedikt Guðnason áfengis og vímuefnaráðgjafi Sara Mjöll Vatnar Skjaldardóttir áfengis og vímuefnaráðgjafi Trausti Einarsson áfengis og vímuefnaráðgjafanemi Guðný Björg Helgadóttir hjúkrunarfræðingur Halldóra Róbertsdóttir hjúkrunarfræðinemi Bryndís Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur, aðstoðarfagstjóri Ael Nabetse hjúkrunarfræðingur Sandra Kristín Björnsdóttir móttökuritari Erla Dögg Héðinsdóttir móttökuritari Signý Sigurðardóttir sálfræðingur Gunnhildur Hafþórsdóttir Blöndal hjúkrunarfræðingur Oddur Sigurjónsson áfengis og vímuefnaráðgjafi Júlí Aspelund fagstjóri fræðslu og þjálfunar Baldvin Þór Þorsteinsson áfengis og vímuefnaráðgjafi Nanna Björk Elvarsdóttir áfengis og vímuefnaráðgjafanemi Tinna Jónsdóttir sjúkraliði Aníta Ösp læknir Katla Sigríður Gísladóttir læknanemi Vilborg Þórsdóttir sjúkraliði Birta Dís Lárusdóttir sálfræðingur Júlíus Fannar Pálsson næturvörður Svanur Þorláksson áfengis og vímuefnaráðgjafi Steingerður Björk Pétursdóttir sjúkraliði Dagrún Þórný Marínardóttir heilbrigðisgagnafræðingur Sigfríður Birna Sigmarsdóttir sjúkraliði Rósa Diljá Gísladóttir hjúkrunarfræðingur Kristín Maggý Erlingsdóttir sjúkraliði Björn Björnsson áfengis og vímuefnaráðgjafanemi Margrét Erla Þorláksdóttir áfengis og vímuefnaráðgjafi Bjarney Rós Guðmundsdóttir félagsráðgjafi Ólafur Guðmundsson læknir, fagstjóri lækninga Þóra G Þórisdóttir sjúkraliði Ólöf Kristjánsdóttir sjúkraliði Kolbrún Brynja áfengis og vímuefnaráðgjafanemi Selja Dís Jónsdóttir áfengis og vímuefnaráðgjafanemi Árný Inga Guðjónsdóttir sjúkraliði Guðbjörg Drengsdóttir sjúkraliði Guðlaug Dóra Þorsteinsdóttir sjúkraliði Rakel Sif deildarstjóri ritunar Ninja Elín Maggadóttir áfengis og vímuefnaráðgjafanemi Herdís Rún Tómasdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Borghildur Hauksdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafanemi Silja Jónsdóttir sálfræðingur Hekla Líf Júlíusdóttir sjúkraliði Thelma Rut Jónsdóttir sjúkraliði