Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur mætt ýmsum hindrunum á ferlinum, en á golfsvæði hans í Doonbeg á Írlandi er það agnarsmár snigill sem hefur reynst erfiður viðureignar. Trump vill reisa þar stóran dans- og veislusal sem sonur hans, Eric Trump, hefur sagt að verði „sá glæsilegasti í landinu“. En samkvæmt Financial Times hafa skipulagsyfirvöld og umhverfissinnar áhyggjur af áhrifum framkvæmdanna á búsvæði snigilsins Vertigo angustior, sem er aðeins um tveir millimetrar að lengd og nýtur verndar samkvæmt búsvæðatilskipun ESB. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem snigillinn stendur í vegi fyrir framkvæmdum Trumps á svæðinu. Eftir að hann keypti golfvöllinn árið 2014 vildi hann reisa grjótvegg til að verja völlinn gegn landbroti, en áformin voru stöðvuð vegna hættu á skaða á búsvæði tegundarinnar. Trump hafði þá sjálfur sagst ætla að vera „vinur“ snigilsins. Nú hefur sama smádýr aftur blandað sér í framkvæmdagleði forsetans. Umhverfissinnar halda því fram að stofn snigilsins á svæðinu hafi minnkað verulega undanfarin ár. Einn andstæðingur framkvæmdanna hefur jafnframt vakið athygli á leðurblökum og varað við því að þyrluumferð að golfsvæðinu geti skapað þeim hættu. Ekki eru þó allir íbúar Doonbeg jafn áhyggjufullir. Golfmótið Irish Open fer fram á vellinum og heimamenn gera ráð fyrir að það skili um 10 milljónum evra inn í nærsamfélagið. Stuðningsmenn framkvæmdanna segja varanlegan veislusal geta aukið umsvif og skapað störf allt árið. Írsk skipulagsyfirvöld hafa gefið Trump frest fram í lok október til að skila frekari upplýsingum um framkvæmdina, þar á meðal um áhrif á grunnvatn. Ákvörðunar um hvort danssalurinn fái að rísa er að vænta 25. nóvember. Þangað til heldur einn minnsti andstæðingur Trumps áfram að tefja einn stærsta golfdraum hans.