Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur staðfest að hann hafi farið fram á það við Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) að endurskoða eins leiks bann Folarins Baloguns á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Donald Trump staðfestir að hann hafi beðið FIFA um að endurskoða leikbann Folarins Baloguns. FIFA féllst á það og framherjinn verður því með Bandaríkjunum gegn Belgíu. Trump segir ákvörðunina hafa verið þá réttu. Trump sagði á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag að FIFA hefði tekið rétta ákvörðun með því að fresta framkvæmd leikbannsins. Að hans mati hefði bannið varpað „stórum skugga“ á mótið. Bað ekki um að banninu yrði aflétt en óskaði eftir endurskoðun Balogun, sem er markahæsti leikmaður Bandaríkjanna á mótinu, átti upphaflega að taka út leikbann í 16-liða úrslitaleiknum gegn Belgíu í Seattle sem hefst á miðnætti. Í gær ákvað aga- og siðanefnd FIFA hins vegar að fresta framkvæmd bannsins um tólf mánuði og verður framherjinn því gjaldgengur í leikinn. Trump staðfesti jafnframt að hann hefði rætt við Gianni Infantino, forseta FIFA, eftir að Balogun fékk rauða spjaldið. Hann sagðist þó aðeins hafa óskað eftir endurskoðun málsins en ekki farið fram á að leikbanninu yrði aflétt. „Mér fannst þetta einfaldlega vera tveir frábærir íþróttamenn sem rákust saman og flæktust hvor í öðrum. Ég tel að þetta hafi ekki verið brot,“ sagði Trump. „Ég held að ákvörðunin hafi verið rétt.“