Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rannsaka hvort skemmdarverk hafi verið unnin á lestarteinum fyrir slys

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 26 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Rann­saka hvort skemmd­ar­verk hafi verið unnin á lest­ar­tein­um fyrir slys Dagný Hulda Erlendsdóttir Lögregla í Frakklandi telur að skemmdarverk á lestarteinum hafi orðið til þess að lestarslys varð í norðvesturhluta landsins í gær. 44 slösuðust. Meðal þeirra var 18 ára stúlka sem slasaðist alvarlega. Bútur úr brautarteinum fannst á vettvangi og því rannsakar lögregla hvort átt hafi verið við teinana. Lestin var á leið frá Rúðuborg til Caen þegar hún fór út af sporinu. 186 farþegar voru um borð. Lest í Frakklandi. Mynd úr safni. EPA Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þrjár lík­ams­árás­ir í mið­borg­inni Þrjár líkamsárásir voru í miðborginni í nótt. Enginn særðist alvarlega í þeim. Tveir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa vegna árásanna. Fyrir 28 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Haust­ið boðið vel­kom­ið í glæ­nýrri stiklu Það kennir ýmissa grasa í haustdagskrá sjónvarpsins. Nýr spennandi spurningaþáttur, pabbahelgar, perlur úr safni sjónvarps og margt fleira. Haustdagskránni hefur verið þjappað saman í skemmtilega stiklu sem gefur glögga mynd af því sem koma skal. Fyrir 59 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Akraneskaupstaður Ís­lenska kart­afl­an allt í öllu á Akra­nesi Kartölfur verða í aðalhlutverki á Akranesi í dag því þar fer fram Litla Kartöfluhátíðin hjá Byggðasafninu í Görðum. Á hátíðinni mun saga, ræktun, matarmenning og menningararfur mætast í gegnum eina merkustu nytjaplöntu landsins: Íslensku kartöfluna. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ríkisútvarpið Viku­lok­in: PISA, þing­setn­ing og sam­skipti Ís­lands og Banda­ríkj­anna Í Vikulokunum í dag er rætt um niðurstöður PISA, skólakerfið, þingsetningu, fjárlög og samskipti Bandaríkjanna og Íslands. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Stöðv­uðu rútu á Þing­völl­um vegna ol­íuleka Rúta á vegum ferðaþjónustufyrirtækis var stöðvuð af landvörðum á Þingvöllum vegna olíuleka. Þjóðgarðsvörður segir til skoðunar hvort tilkynna þurfi málið. Forstjóri fyrirtækisins segist harma atvikið. Mannleg mistök hafi verið valdur þess. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Vindar og vætu­samt veður í kort­un­um Talverðum umhleypingum er spáð næstu daga. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Einn flutt­ur á HSU vegna árekst­urs á Hell­is­heiði Einn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurlands með minniháttar áverka eftir þriggja bíla árekstur á Hellisheiði í morgun. Alls voru tólf í bílunum. Veginum var lokað meðan verið er að fjarlægja brak vegna árekstursins. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Svikin gegn Ís­lend­ing­um í Al­ic­ante: Spænsk stjórn­völd fá 1100 til­kynn­ing­ar á ári Að minnsta kosti tveir viðskiptavinir leigufélagsins Sammlindar ehf. ætla að kæra eiganda þess til lögreglunnar. Fólkið leigði íbúðir í Alicante fyrir háar fjárhæðir en fékk aldrei aðgang að þeim. Slík svik eru algeng á Spáni. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Manns­hvörf­in í Hima­laja: Gott að fá lokun í málið Það var tilfinningaþrungin stund þegar aðstandendur Þorsteins Guðjónssonar og Kristins Rúnarssonar fengu staðfest að fatnaður sem fannst undir fjallinu Pumori væri merktur þeim. Þorsteinn og Kristinn hurfu sporlaust af fjallinu 30 árum áður. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Hútar her­tóku mik­il­væg­ar eyjar í Rauða­hafi Hútar hafa náð tökum á ströndinni við Rauðahaf og hertóku þrjár mikilvægar eyjar á Rauðahafi í skyndisókn í gær. Sádar hafa reitt sig á olíuflutninga um Rauðahaf síðan siglingaleiðir lokuðust um Hormússund. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist „Við ætlum að gera hluti sem hafa ekki sést áður á Ís­landi“ Hljómsveitin Quarashi treður upp á stórtónleikum 19 september í tilefni af þrjátíu ára afmæli sínu. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti „Þetta er smá óraun­veru­legt“ og ætla að bæta upp fyrir 2021 Bikarúrslit kvenna í fótbolta eru í dag klukkan 16:00. Þróttur og Grindavík/Njarðvík mætast. Fyrirliði Grindavíkur/Njarðvíkur segir óraunverulegt að vera í úrslitum í fyrsta sinn en Þróttarar ætla að bæta upp fyrir tapið 2021. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Bíla­stæða­gjöld á ferða­manna­stöð­um í eigu þjóð­ar­inn­ar skila um millj­arði í kass­ann Tekjur af bílastæðagjöldum í Þjóðgarðinum á Þingvöllum og við sex náttúruperlur í umsjón Náttúruverndarstofnunar nema um einum milljarði króna á ári. Ekki er ljóst hvort gjöldin verði áfram innheimt þegar nýtt gjald á ferðamannastaði verður lagt á. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu 500.000 rúss­nesk­ir her­menn sagðir hafa fallið í inn­rás­inni í Úkra­ínu Mesta mannfallið hefur orðið eftir janúar 2023. Á sama tíma hafa Rússar einungis náð tveimur prósentum af landsvæði Úkraínu. Talið er að samanlagður fjöldi fallinna, særðra og þeirra sem saknað er sé 1,5 milljón rússneskra hermanna. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: Nýr bik­ar­meist­ari krýnd­ur í Mjólk­ur­bik­ar kvenna Klukkan 16:00 í dag mætast Grindavík/Njarðvík og Þróttur í bikarúrslitum kvenna í fótbolta. Hvorugt liðið hefur orðið bikarmeistari og því ljóst að sigurvegarinn verður níunda liðið til þess að vera ritað á bikarinn. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Flug­völl­ur­inn í Nas­hville skipt­ir um nafn til heið­urs Dolly Parton Brynja Dögg Friðriksdóttir Hin eina sanna Dolly Parton. EPA / WILL OLIVER Flugvallaryfirvöld í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum hafa ákveðið að breyta nafni flugvallarins til heiðurs tónlistarkonunni og goðsögninni Dolly Parton sem lést nýverið. Stjórn flugvallarins samþykkti einróma í gær að hefja undirbúning að því að breyta nafni flugvallarins. Þótt ekki sé búið að ákveða endanlegt heiti þá verður nýja nafn flugvallarins til heiðurs Parton. PBS News segir að þetta verði í fyrsta sinn sem einn af 50 stærstu flugvöllum í Bandaríkjunum er nefndur eftir konu. Parton lést í Nashville 25. ágúst, 80 ára að aldri. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Sex fund­ust í bíl í Hel­sinki Sex einstaklingar fundust í bíl í höfninni í Helsinki í vikunni en þeir höfðu falið sig í bílnum. Finnsk landamærayfirvöld ætla að senda eftirlitssveit til Tallinn til að reyna að sporna við komu föru- og flóttafólks með ólöglegum hætti til landsins. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Sjór við strend­ur Spánar aldrei jafn hlýr Brynja Dögg Friðriksdóttir Strandgestir á Malaga á Spáni. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / Alvaro Cabrera Hitastig sjávar við strendur Spánar hefur aldrei mælst jafn hátt og í sumar samkvæmt spænskum hafnaryfirvöldum. Reuters greinir frá. Hæsta hitastig sjávar mældist við bauju nærri Baleareyjum, eða 33,02 gráður þann 5. ágúst. Fjórum dögum síðar mældist sjávarhiti við Tarragona 30,7 gráður og 30,5 gráður við Barcelona. Þá hefur hitastig Atlantshafsins einnig mælst óvenju hátt í sumar. 23. júní mældist hitastig sjávar 28,4 gráður út fyrir ströndum Pasaia á norðurströnd Spánar. 12. september 2026 kl. 1:50ERLENDAR FRÉTTIR Lýðstjórnarlýðveldið Kongó Eb­ólu­far­ald­ur­inn heldur áfram að breið­ast út Ebólusmitaður einstaklingur lést í Suður-Ubangi en þar með hefur ebóla greinst í sjö héruðum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Alls hafa tæplega 7.000 greinst með veiruna í þessum mannskæða faraldri. 12. september 2026 kl. 0:32ERLENDAR FRÉTTIR Sádi-Arabía For­dæma dróna­árás­ir á ol­íu­leiðslu Utanríkisráðuneyti Sádi-Arabíu hefur fordæmt drónaárásir á olíuleiðslu sem liggur frá austri til vesturs í landinu. Drónarnir eru sagðir hafa flogið frá Írak. Ríkisstjórn Íraks hefur sömuleiðis fordæmt árásirnar. 11. september 2026 kl. 22:50ERLENDAR FRÉTTIR Frakkland 44 slas­að­ir og ein í lífs­hættu eftir lest­ar­slys í Frakk­landi 44 eru slasaðir eftir að lest fór út af sporinu í Normandí í dag. 18 ára stúlka sem er lífshættulega slösuð var flutt af vettvangi í þyrlu. Járnbrautaryfirvöld og lögregla rannsaka orsakir slyssins. 11. september 2026 kl. 22:15ÍÞRÓTTIR Handbolti KA gerði sér góða ferð í Foss­vog­inn Anna Sigrún Davíðsdóttir Víkingur tók á móti KA í Olísdeild karla í handbolta í kvöld. Akureyringar unnu eins marks sigur, 25-26. KA byrjaði með látum og komst átta mörkum yfir, 1-9, á 12. mínútu. Víkingar löguðu stöðuna og 9-12 stóð í hálfleik. Mjótt var á munum undir lokin en alltaf héldu KA-menn forskotinu. Sigurður Páll Matthíasson minnkaði muninn fyrir Víkinga í eitt mark á lokasekúndum leiksins úr vítakasti en nær komust þeir ekki og KA menn taka stigin tvö eftir 25-26 sigur. Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði fimm mörk fyrir KA. Rúv / Mummi Lú 11. september 2026 kl. 22:11INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál „Það er keyrt á málið á hnef­an­um“ „Það er keyrt á málið á hnefanum,“ segir eigandi húss í Hafnarfirði, þar sem byggja á nýjan Tækniskóla. Bærinn gaf skólanum vilyrði um að byggja nýja skólabyggingu á lóðinni sem þegar er í notkun. Skólinn kannar möguleika í öðrum sveitarfélögum. 11. september 2026 kl. 21:31ERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Síð­ustu kapp­ræð­ur fyrir kosn­ing­ar í Sví­þjóð: „Það verður að vera ein­hver hel­vít­is regla á þessu“ Það stefnir í afar spennandi kosningar í Svíþjóð og mjótt er á munum milli hægri- og vinstriblokkarinnar. Mikill hiti var í kappræðum leiðtoga flokkanna í kvöld. 11. september 2026 kl. 21:16ÍÞRÓTTIR Fótbolti Gíf­ur­leg­ur áhorf­enda­fjöldi — best sóttu bik­ar­úr­slit frá 2015 Alls mættu 5.630 manns á bikarúrslit karla í fótbolta er Breiðablik vann Aftureldingu 2-1. Þetta er aðsóknarmesti bikarúrslitaleikur frá 2015. Auk þess er þetta fjórði aðsóknarmesti leikur frá 1992. 11. september 2026 kl. 20:56ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Sakar yf­ir­völd um að hafa hylmt yfir al­var­leika meng­un­ar Borgarstjóri New York sakar yfirvöld um að hafa hylmt yfir hversu hættuleg mengun var eftir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum 2001. 25 ár eru í dag frá árásunum. 11. september 2026 kl. 20:26MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Skaga­menn taka for­skot á sæluna Hljómsveitin Quarashi bauð Skagamönnum á opna æfingu í kvöld. Hljómsveitin æfir nú stíft fyrir afmælistónleika í Laugardalshöll. 11. septe

Share this article