44 slösuðust og þar af einn alvarlega þegar lest fór út af sporinu í Frakklandi í dag. Lestin var á leið milli Rúðuborgar og Caen í Normandí-héraði með 186 farþega um borð. Hún fór út af sporinu rétt fyrir klukkan átta á staðartíma. Neyðaráætlun vegna fjöldaslysa var virkjuð og 130 slökkviliðsmenn, fimm læknateymi og 80 ökutæki voru send á vettvang. „Skyndilega komu nokkrir kippir. Í fyrstu hélt ég að þetta væri eðlilegt en svo eftir um þrjár sekúndur urðu þeir sífellt sterkari,“ sagði einn farþeganna, hinn 24 ára Louis, í samtali við ICI Normandie . „Ég gat ekki lengur haldið mér í sætinu,“ sagði hann. „Rúðurnar brotnuðu að hluta til og steinar af teinunum komu inn í vagninn. Þetta var virkilega mikið áfall. Ég skelf enn þá.“ 44 eru slasaðir, þar á meðal 18 ára stúlka sem er lífshættulega slösuð og var flutt af vettvangi í þyrlu. Þetta segir Sebastien Gallois, saksóknari í Rouen. Lestarstjórinn stóðst áfengis- og vímuefnapróf að sögn Gallois. Járnbrautaryfirvöld og lögregla rannsaka orsakir slyssins.