Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Megum ekki láta óttann stöðva umræðuna

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.9.2026 | 21:15 Megum ekki láta óttann stöðva umræðuna Frá og með 1. október mega lyfjafræðingar í apótekum bólusetja gegn ákveðnum sjúkdómum. Sigurbjörg segir það eina af mörgum leiðum til að nýta sérþekkingu lyfjafræðinga betur og létta álagi á heilbrigðiskerfið. mbl.is/Hari Rósa Margrét Tryggvadóttir [email protected] Setja bókamerki Menntun og sérþekking lyfjafræðinga nýtast ekki til fulls í íslenska heilbrigðiskerfinu að mati Sigurbjargar Sæunnar Guðmundsdóttur, formanns Lyfjafræðingafélags Íslands. Hún telur að hægt sé að bæta þjónustu við sjúklinga og auka aðgengi að heilbrigðisþjónustu með því að dreifa verkefnum betur milli heilbrigðisstétta. Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður LFÍ segir sérþekkingu lyfjafræðinga ekki nýtta til fulls í íslenska heilbrigðiskerfinu. Ljósmynd/Lyfjafræðifélag Íslands Sigurbjörg leggur áherslu á að hugmyndin snúist ekki um að taka verkefni af öðrum heilbrigðisstéttum heldur að stéttirnar vinni saman og hver fagstétt fái að nýta þekkingu sína þar sem hún nýtist best. „Við erum öll saman í liði að bæta þjónustu við almenning. Hvað getið þið gert? Hvað getum við gert?“ segir Sigurbjörg í samtali við mbl.is. Hún segir álag á heilbrigðiskerfi fara vaxandi víða um heim vegna hækkandi aldurs og aukinnar lyfjanotkunar og að meðal annars Bretland og Kanada hafi brugðist við með því að nýta sérþekkingu lyfjafræðinga í auknum mæli. Aukin afgreiðsla í apótekum Sigurbjörg sér meðal annars tækifæri til að auka afmarkaða heilbrigðisþjónustu í apótekum hér á landi. Sigurbjörg segir klíníska lyfjafræðinga geta verið með allt að átta ára nám að baki og búa yfir mikilli sérþekkingu á lyfjameðferð, en hér á landi geti þeir ekki ávísað lyfjum sjálfir með sama hætti og víða erlendis. mbl.is/Friðrik Tryggvason Frá 1. október verður lyfjafræðingum sem lokið hafa tilskilinni endurmenntun heimilt að bólusetja í apótekum. Sigurbjörg segir það fyrsta skrefið í átt að því að auka aðgengi almennings að heilbrigðisþjónustu. Næst mun taka við þjónusta á kennslu innöndunarlyfja og stuðning við upphaf lyfjameðferðar sem lyfjafræðingar hér eru spenntir til að komi í framkvæmd, sjúklingum til hagsbóta. Hún bendir á að í Bretlandi og Kanada geti fólk í ákveðnum tilvikum fengið úrlausn vegna minniháttar kvilla í apóteki án þess að þurfa fyrst að leita á heilsugæslu. Slík þjónusta sé veitt eftir skýrum klínískum leiðbeiningum og markmiðið sé meðal annars að auka aðgengi að þjónustu og létta álagi á bráðaþjónustu. Víða erlendis getur fólk leitað beint til lyfjafræðings vegna tiltekinna algengra kvilla án þess að þurfa að leita til heilsugæslu. Sigurbjörg vill sjá þróun í sömu átt hér á landi. Ljósmynd/Colourbox Í Englandi hefur slík þjónusta þegar náð töluverðu umfangi. Þar rekur NHS svonefnda Pharmacy First-þjónustu, þar sem fólk getur leitað beint til lyfjafræðings vegna tiltekinna algengra kvilla. Nýjar tölur NHS England sýna að 14 milljón afgreiðslur hafa farið fram í gegnum apótekin frá því hún tók til starfa í ársbyrjun 2024, sem annars hefðu farið í gegnum heilsugæslu eða bráðaþjónustu. Þar af voru sjö milljónir vegna algengra kvilla, meðal annars um tvær milljónir vegna bráðrar hálsbólgu og rúmlega 1,7 milljónir vegna þvagfærasýkinga. Sigurbjörg segir jafnframt menntun lyfjafræðinga á Íslandi ekki nýtast til fulls. „Við erum ekki að fullnýta menntunina okkar,“ segir hún. Hún tekur þó fram að ávísunarréttur lyfjafræðinga í apótekum geti verið viðkvæmt mál enda selji apótekin jafnframt lyfin. Hún kallar því ekki eftir ótakmörkuðum ávísunarrétti heldur bendir á þann möguleika að heimildir séu afmarkaðar við tiltekin lyf og tilfelli samkvæmt skýrum klínískum leiðbeiningum. Sérfræðingar í lyfjum en geta ekki ávísað sjálfir Sigurbjörg bendir einnig á stöðu klínískra lyfjafræðinga á sjúkrahúsum og heilsugæslum. „Þarna eru okkar fremstu sérfræðingar í lyfjum sem hafa 8 ára háskólamenntun í lyfjafræði á bakinu. Þeir vinna náið og í góðu samstarfi með læknum að lyfjameðferð sjúklinga, eftirfylgni með meðferð og umsókn greiðsluþátttöku.“ Að hennar sögn byggir sérnámið hér á landi á breskri fyrirmynd en ábyrgðin lagalega séð er hjá læknum samkvæmt núgildandi heimildum, ólíkt því sem gerist á Bretlandi. Þótt mikilvægt sé að létta álagi á heilbrigðiskerfinu segir Sigurbjörg málið ekki síður snúast um að nýta sérþekkinguna þar sem hún liggur. „Við erum bara að tala um að fá fremstu sérfræðingana til að gera hlutina,“ segir hún. Allar stéttir vinni saman Hún hvetur stjórnvöld áfram til að skoða verkaskiptingu heilbrigðisstétta heildstætt fremur en að einstök verkefni séu tekin fyrir hvert í sínu lagi. „Í mínum draumaheimi, þá vinnum við bara öll saman,“ segir hún. Sigurbjörg segist vilja sjá sérstakan vinnuhóp þar sem fulltrúar ólíkra heilbrigðisstétta fari saman yfir hvaða verkefnum hver stétt geti sinnt og hvernig megi bæta þjónustu við almenning. Kunna að vera umdeildar hugmyndir Hún segir mikilvægt að slíkar ákvarðanir byggist á faglegum rökum og séu studdar af rannsóknum. Ef lyfjafræðingar eigi ekki að sinna tilteknum verkefnum þurfi að liggja fyrir hvers vegna. „Ég geri mér grein fyrir því að þessar hugmyndir kunna að vera umdeildar hér á landi, jafnvel þótt sambærileg verkaskipting hafi þegar þróast víða annars staðar. En við megum ekki láta óttann við breytingar koma í veg fyrir nauðsynlega umræðu. Markmiðið er ekki að færa völd frá einni heilbrigðisstétt til annarrar, heldur að nýta betur þá sérþekkingu sem þegar er til staðar, sjúklingum og heilbrigðiskerfinu til hagsbóta,“ segir Sigurbjörg að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Iraola: „Okkur skorti ferskleika“ Englandsmeistararnir aftur á toppinn Brynjólfur skoraði og Stefán Ingi lagði upp Megum ekki láta óttann stöðva umræðuna „Erfitt með að trúa því að þetta hafi gerst“ Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hættu þessu meikrugli og drífðu þig heim Bæjaryfirvöld vilja fleiri bílakjallara „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Efnahagurinn lamaður vegna árása Rússa Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Hellisheiði lokuð vegna slyss Stórir hópar lækna hætta störfum Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný Algjörlega óviðunandi staða Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nýjast á mbl.is » Iraola: „Okkur skorti ferskleika“ Englandsmeistararnir aftur á toppinn Brynjólfur skoraði og Stefán Ingi lagði upp Megum ekki láta óttann stöðva umræðuna „Erfitt með að trúa því að þetta hafi gerst“ Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Ríkið stillir af leikreglur en er eigandi Efnahagurinn lamaður vegna árása Rússa Ríkið beggja vegna borðsins Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Hellisheiði lokuð vegna slyss Stórir hópar lækna hætta störfum Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný Algjörlega óviðunandi staða Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ

Share this article