Innlent | mbl | 10.9.2026 | 10:31 Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Ljósmæður sinna konum á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu en þurfa þó enn í ýmsum tilvikum númer eða undirskrift læknis vegna verkefna sem þær sjálfar vinna. Ljósmynd/Colourbox Rósa Margrét Tryggvadóttir [email protected] Setja bókamerki Á rannsóknarbeiðni í mæðravernd þarf að skrá númer læknis sem jafnvel hefur aldrei hitt konuna sem sækir þangað þjónustu, í stað númers ljósmóðurinnar sem sinnir henni og ber ábyrgð á eftirfylgdinni. Fyrirkomulagið veldur tvíverknaði og tvöföldu bókhaldi og eykur hættuna á að niðurstöður fari fram hjá þeim sem eiga að fylgja þeim eftir, að mati formanns Ljósmæðrafélags Íslands. Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður félagsins, segir ljósmæður þannig glíma við sambærilegan vanda og hjúkrunarfræðingar hafa áður bent á. Frétt af mbl.is Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segir núverandi kerfi valda óþarfa tvíverknaði og að einfaldar breytingar gætu bæði sparað tíma og aukið öryggi skjólstæðinga. Ljósmynd/Aðsend „Þetta er öryggisatriði,“ segir hún í samtali við mbl.is. Hún segir ljósmæður þurfa að halda sérstaklega utan um rannsóknirnar og leita sjálfar að niðurstöðunum svo ekkert fari fram hjá þeim. „Það er fullt af sóun í heilbrigðiskerfinu sem væri svo auðvelt að laga með smá vilja,“ segir hún. Tvöfalt bókhald til að fylgja niðurstöðum eftir Unnur segir ljósmæður sérfræðinga í eðlilegri meðgöngu, fæðingu og sængurlegu og að ýmsar venjubundnar rannsóknir séu hluti af þeirri þjónustu. Þær hafi allar eigið ljósmæðranúmer en geti engu að síður ekki notað það á þessar rannsóknarbeiðnir. „Svo þurfa þær að fylgjast með og leita að niðurstöðunni sjálfar. Það kemur ekki sjálfkrafa til þeirra.“ Niðurstaðan birtist þess í stað hjá þeim lækni sem skráður hefur verið á beiðnina. Ljósmæður eru sérfræðingar í eðlilegri meðgöngu, fæðingu og sængurlegu og bera þar mikla ábyrgð á umönnun kvenna og barna. Ljósmynd/Colourbox Unnur segir þetta kalla á eins konar tvöfalt bókhald hjá ljósmæðrum og að með hverju aukaskrefi aukist hættan á að eitthvað týnist í ferlinu. Hún leggur áherslu á að málið snúist ekki eingöngu um að útvíkka starfssvið ljósmæðra heldur að uppfæra kerfin í samræmi við raunverulegt umfang og ábyrgð þeirra í starfi. Slíkar breytingar myndu að hennar mati bæði auka öryggi skjólstæðinga og fela í sér töluverða hagræðingu. Í sumum tilfellum segir Unnur að vandinn sé í raun tæknilegs eðlis. „Þetta er bara eitt hak í tölvukerfinu,“ segir Unnur og minnir á að ljósmæður séu þegar með sérstakt starfsnúmer sem hægt væri að nota. Unnur segir mikilvægt að kerfin endurspegli þá ábyrgð sem ljósmæður bera nú þegar í starfi. Ljósmynd/Colourbox Vinna vottorðið en þurfa undirskrift læknis Rannsóknarbeiðnirnar eru ekki eina dæmið. Unnur segir ljósmæður einnig vinna og fylla út vottorð en þurfa síðan að fá lækni til að undirrita þau. Sá læknir geti jafnvel verið utan meðferðarsambands við konuna. Hann þurfi þá annaðhvort að setja sig inn í sögu hennar og það mat sem liggur að baki vottorðinu eða treysta vinnu ljósmóðurinnar og skrifa bara undir. „Þetta á ekki að vera svona. Ljósmóðirin á að bera ábyrgð á sinni vinnu,“ segir Unnur. Unnur nefnir einnig konur með meðgöngusykursýki sem þurfa búnað til blóðsykursmælinga. Ljósmæður fylli út gögnin en þurfi síðan lækni til að kvitta undir. „Það er búið að greina hana með meðgöngusykursýki, af hverju getur ekki ljósmóðirin sótt um þetta?“ Hið sama eigi við um ýmsar tilvísanir og fleiri verkefni sem ljósmæður sinna en þurfa formlega staðfestingu læknis til að ljúka. Unnur segist ekki vita hvar tregðan í kerfinu liggi. Í sumum tilfellum ætti vandinn jafnvel ekki að vera flóknari en stilling í tölvukerfinu. Ljósmynd/Colourbox Læknirinn komi inn þegar þess þarf Unnur leggur áherslu á að ljósmæður og læknar vinni saman í teymi. Ljósmæður eigi að geta borið ábyrgð á venjubundnum verkefnum sem falla undir þeirra starf en leita til læknis þegar niðurstöður kalla á frekara læknisfræðilegt mat. Hún segir það svo á ábyrgð ljósmóður að leita til læknis þegar niðurstöður eru ekki eins og þær eiga að vera. „Og þá vinnum við í teymi saman,“ segir hún og bætir við að þeir læknar sem hún hafi rætt við séu sammála um að lítið vit sé í núverandi fyrirkomulagi og vilji bera ábyrgð á þeim verkefnum sem í raun falla undir þeirra starf. Tillögurnar þegar á borðinu Vandinn er ekki nýr. Starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins skilaði í nóvember 2024 skýrslu þar sem lagt var til að regluverk og kerfi yrðu færð nær því verklagi sem þegar er við lýði. Meðal tillagna var að ljósmæður gætu sjálfar verið skráðar ábyrgðaraðilar rannsóknarbeiðna og fengið niðurstöður á eigin vinnulista. Einnig voru lagðar til breytingar á heimildum þeirra varðandi meðal annars lyfjaávísanir og vottorð. Unnur segir mikla vinnu hafa farið í skýrsluna og að fleiri heilbrigðisstéttir, þar á meðal læknar, hafi komið að yfirferð hennar. Hún vill nú sjá tillögunum hrint í framkvæmd. Vinnan við skýrsluna fór fram í tíð Willums Þórs Þórssonar sem heilbrigðisráðherra en breytingarnar náðu ekki fram að ganga áður en ríkisstjórnarskipti urðu. Unnur segist ekki vita til þess að tillögunum hafi verið hrint í framkvæmd í tíð núverandi ríkisstjórnar, þrátt fyrir að félagið hafi ítrekað kallað eftir breytingum. „Þetta er svo mikill óþarfi“ Unnur segir vandann gott dæmi um sóun sem hægt væri að draga úr án þess að skerða þjónustu. Þvert á móti gætu breytingarnar að hennar mati aukið öryggi og sparað tíma bæði ljósmæðra og lækna. Kerfið eigi einfaldlega að endurspegla betur hver sinnir vinnunni og hver ber ábyrgð á henni. „Þetta er svo mikill óþarfi,“ segir hún. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Allt undir hjá varnarmanni United Margrét Þórhildur útskrifuð Ekki tekst að ljúka verkinu í ár Vatnslitahátíð Íslands haldin í fyrsta skipti á Akureyri Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Undrast röksemdafærslu ráðherra „Nú blasir við verðbólguvetur“ „Við skuldum engri elítu neitt“ „Íslenska menntakerfið er ekki að skila árangri“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Gæti margfaldað orkuna Heiðruðu Harald konung og settu met Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Undrast röksemdafærslu ráðherra „Við skuldum engri elítu neitt“ Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » Allt undir hjá varnarmanni United Margrét Þórhildur útskrifuð Ekki tekst að ljúka verkinu í ár Vatnslitahátíð Íslands haldin í fyrsta skipti á Akureyri Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Selenskí og Þorgerður ræddu saman í Keflavík Hjúkrunarheimili hafnað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Gæti margfaldað orkuna Heiðruðu Harald konung og settu met Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Undrast röksemdafærslu ráðherra „Við skuldum engri elítu neitt“ Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur