Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld

  • What: Archaeologists conducted surveys in Fljótsdalshérað
  • Impact: No impact on IT security
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.9.2026 | 22:08 Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Frá vinstri eru fornleifafræðingarnir Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Oscar Aldred, Stefán Ólafsson, Guðrún Alda Gísladóttir og Pablo Barruezo Vaquero. Lengst til hægri er Magnús Á. Sigurgeirsson gjóskulagafræðingur. Ljósmynd/Fornleifastofnun Íslands Skúli Björn Gunnarsson Fljótsdalshérað Setja bókamerki Fornleifafræðingar frá Fornleifastofnun Íslands unnu að vettvangsrannsókn á sex stöðum á Fljótsdalshéraði í ágúst. Rannsóknin er hluti af þverfaglegu verkefni þar sem fornbýli á nokkrum stöðum á landinu eru skoðuð út frá sagnfræði, fornleifafræði og margs konar landupplýsingum. Þegar hafa verið könnuð býli í Eyjafirði, á Suðurlandi og Vesturlandi og verða upplýsingar af Austurlandi nýttar til samanburðar í verkefninu. Könnunarskurðir í bæjartóftum „Þetta fór allt saman fram úr björtustu væntingum. Allir staðirnir sem við skoðuðum voru sjónrænir og flottir minjastaðir. Þessir staðir höfðu verið heimsóttir áður af fornleifafræðingum fyrir 20-30 árum vegna skráningar og tveir nýlega. Við mældum upp minjar sem ekki höfðu verið mældar og boruðum með jarðvegsbor í flestar tóftanna til að fá vísbendingar um aldur og eðli og til að velja staðsetningu fyrir könnunarskurði. Við tókum síðan skurði í meintar bæjartóftir á hverjum stað til að fá betri gögn um aldur og eðli býlisins,“ segir Elín Ósk Hreiðarsdóttir fornleifafræðingur sem fer fyrir fornleifahluta eyðibýlaverkefnisins. Verkefnið, sem styrkt er af Rannís, snýst um að rannsaka eyðingu byggðar frá 12. og fram á 15. öld og tengist öðrum verkefnum sem miða að því að varpa ljósi á þann tíma í sögu byggðar á Íslandi. Við fornleifauppgröft kemur hins vegar oft eitthvað eldra eða yngra í ljós en til að draga úr líkum á því var leitast við að velja ekki staði með yngri minjum og heldur ekki staði sem höfðu skýr merki um vera víkingaaldarbýli að sögn Elínar. Gjóska úr eldgosum er nýtt til aldursgreiningar á minjunum. Magnús Á. Sigurgeirsson gjóskulagafræðingur rýndi gjóskulögin og það sýndi sig að flest býlanna voru byggð fljótlega eftir að landnámslagið féll. Á Fljótsdalshéraði er áberandi gjóskulag frá Heklugosi árið 1158. Horft yfir fornbýlið að Þorgerðarstöðum í Fellum. Túngarður er greinilegur og Egilsstaðir sjást í fjarska handan Lagarfljóts. Í sumum tilfellum lá gjóskan yfir öllum minjum en á öðrum stöðum hafði verið byggt ofan á það og býlin þá oftast farið í eyði á 13. eða 14. öld. Gjóskan úr Veiðivatnagosinu 1477 er áberandi á Héraði og aðeins á einum stað af sex fundust ummerki um endurbyggingu mannvirkja eftir að hún féll. Að sögn Elínar benda því niðurstöðurnar til þess að byggðarsaga býlanna hafi verið talsvert mismunandi, bæði hvað varðar lengd búsetu, fjölda byggingarstiga og hvenær þau fóru í eyði. Fornbýlin, sem Elín og félagar rannsökuðu í sumar og eru austfirski hlutinn af eyðibýlaverkefninu, eru dreifð um Úthéraðið. Þau skoðuðu: Valgerðarstaði og Þorgerðarstaði í Fellum; Goðrúnarstaði og Valhnjúksstaði í Hjaltastaðaþinghá; Fossgerði í Hróarstungu og Bæjargerði í Jökulsárhlíð. Á öllum þessum stöðum eru minjar sem eru greinilegar á loftmyndum sem sýna túngarða umhverfis missýnilegar bæjarrústir. Þegar skyggnst er undir yfirborðið kemur ýmislegt í ljós. Dýrabein og landbrot Í könnunarskurðinum sem fornleifafræðingarnir tóku á Þorgerðarstöðum, sem eru um einn og hálfan kílómetra norðan við Fellabæ, kom til að mynda í ljós ávöl hola sem hafði verið fóðruð að innan með leir og síðar fyllt af dýrabeinum. Að sögn Elínar verða þessi bein rannsökuð í vetur en á vettvangi virtust þarna einkum vera bein úr sauðfé og geitum auk einhverra stórgripabeina. „Rúsínan í pysluendanum var Bæjargerði hjá Sleðbrjót í Jökulsárhlíð. Við höfðum fregnir af miklu landbroti sem drógu okkur þangað. Við gátum farið ofan í rofið við Jökulsána og hreinsað upp snið í rofinu. Þar fundum við mikið af mannvistarminjum og allt var þetta undir gjóskunni frá 1158. Ég hugsa að við reynum að afla styrkja til að koma og rannsaka Bæjargerði betur því að þessar minjar eru berskjaldaðar og halda áfram að skemmast á næstu árum,“ segir Elín. Líklegast er þetta geitabein sem fannst á Þorgerðarstöðum. Elín vinnur nú úr gögnum sumarsins, ásamt Guðrúnu Öldu Gísladóttur, sem fer fyrir vettvangsrannsókninni. Skila þarf skýrslum til Rannís og Minjastofnunar sem veitti leyfi til rannsóknanna. Spurð að því hvort eitthvað hafi komið í ljós við rannsóknirnar á Héraði sem væri öðruvísi en í hinum landshlutunum sagði Elín að það væri helst kolagerðin. „Vísbendingar um kolagerð og nýtingu kola reyndust meiri fyrir austan en á öðrum svæðum sem við höfum skoðað. Sem er kannski eðlilegt því að það voru miklir skógar á Héraði. Við fundum fleiri merki um kol og þá fer maður að velta fyrir sér nýtingu þessara býla á náttúruauðlindum,“ segir Elín. Langar að rannsaka meira fyrir austan „Við vissum svo sem hvernig býli þetta væru en þetta voru umfangsmeiri og betur varðveittar minjar en maður vissi að fullu fyrr en maður kom á staðinn. Flest af þessum býlum virtust fín bæjarstæði, góðar engjar og gott aðgengi að vatni og sum túnin myndarleg. Ég held að við séum öll á því að okkar langi til að koma aftur austur þó að það væri þá annar styrkur í annars konar rannsókn,“ segir Elín að lokum. Hægt er að fræðast meira um þessa rannsókn á Facebook-síðu Fornleifastofnunar Íslands. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Konur myrða ekki fólk með öxi! Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Sjö ráð til að losna við óþarfa Skemmtilegt myndband hjá Blikum Unglingur sat dögum saman ofan á bát sem hvolfdi Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Megum ekki láta óttann stöðva umræðuna Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Býður sig fram til varaformanns Segir sérhvert dráp hörmulegan missi Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Hellisheiði lokuð vegna slyss Stórir hópar lækna hætta störfum Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný Algjörlega óviðunandi staða Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nýjast á mbl.is » Konur myrða ekki fólk með öxi! Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Sjö ráð til að losna við óþarfa Skemmtilegt myndband hjá Blikum Unglingur sat dögum saman ofan á bát sem hvolfdi Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir sérhvert dráp hörmulegan missi Lestarslys í Frakklandi: Grunur um skemmdarverk Bæjaryfirvöld vilja fleiri bílakjallara Óttast þyngri vetur fyrir heimilin Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Kourani var um árabil á framfæri borgarinnar og TR Hellisheiði lokuð vegna slyss Stórir hópar lækna hætta störfum Þriggja bíla árekstur: Heiðin opnuð á ný Algjörlega óviðunandi staða Æ, mér fannst hálfhallærislegt að sjá mig Hvít jörð og hálkublettir fyrir norðan „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ný sundlaug opnuð í Garðabæ

Share this article