Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ístak hagnast um milljarð

Read Full Article →

Ístak, stærsta byggingarfyrirtæki landsins, velti um 27,6 milljörðum króna á síðasta rekstrarári, samanborið við 30,9 milljarða árið áður. Hagnaður síðasta árs nam einum milljarði króna, samanborið við 1,8 milljarða árið áður. Heildareignir félagsins námu 12,3 milljörðum króna í árslok, samanborið við 11,9 milljarða árið áður. Eigið fé stóð í 4,2 milljörðum króna. Stjórn félagsins lagði til að greiddur verði einn milljarður króna í arð til hluthafa á árinu 2026. Ístak er í eigu danska byggingar- og innviðafyrirtækisins Per Aarsleff Holding A/S. Forstjóri félagsins er Karl Andreassen. Í skýrslu stjórnar segir að háir vextir, verðbólga og stríðsátök hafi haft áhrif á rekstur félagsins. Stríðið hafi meðal annars haft áhrif á verðmyndun lykilaðfanga, svo sem stáls og olíu. Þá hafi jarðhræringar á Reykjanesi raskað verkefnum á Suðurnesjum en jafnframt skapað verkefni á svæðinu við byggingu varnarmannvirkja vegna hraunflæðis. Stjórn segir verkefnastöðu fyrirtækisins góða en bendir á að markaðurinn hafi sveiflast mikið undanfarin ár. Vænst sé minni sveiflna á næstu þremur til fimm árum. Einnig segir að erfiðar aðstæður á Grænlandi, samhliða ytri aðstæðum, hafi haft umtalsverð áhrif á verkefni félagsins þar en vonir standi til að farsæl lausn náist á næsta rekstrarári.

Share this article