Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Um þrjátíu fangar þegar verið sendir úr landi

  • What: Immigration policy update
  • Impact: Immigration system
Read Full Article →

Brottvísanir erlendra fanga úr landi hafa þegar létt talsvert á fangelsiskerfinu, segir dómsmálaráðherra. Mohamad Th. Jóhannessyni, áður Mohamad Kourani, var vísað úr landi í vikunni eftir að hafa afplánað þriðjung dóms fyrir tilraun til manndráps og líkamsárás. Tímabundin breyting á lögum um fullnustu refsinga sem tók gildi í júní gerir stjórnvöldum kleift að vísa erlendum brotamönnum úr landi eftir að þeir hafa afplánað þriðjung dóms síns gegn því að þeir sæti endurkomubanni á Schengen-svæðið. Dómsmálaráðherra segir brottvísanir úr landi þegar hafa létt talsvert á fangelsiskerfinu. Þrjátíu fangar hafa verið sendir úr landi – þar á meðal alræmdur glæpamaður. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki óttast að úrræðið sendi þau skilaboð út í heim að hér sé hægt að fremja glæpi án þess að það hafi miklar afleiðingar. „Við erum með ís í maga að taka afgerandi skref til að ná stjórn á fangelsunum og til að losa okkur við menn sem eru hættulegir okkar samfélagi. En þetta er ekki langtímaaðgerð þannig að það eru engin skilaboð út á við og við erum sannarlega ekki eina landið sem er að brottvísa erlendum föngum úr landi að lokinni afplánun,“ segir Þorbjörg. Breytingin fellur úr gildi um mitt næsta ár. Því fylgi vissulega talsverður kostnaður að flytja fanga sem mikið þarf að hafa fyrir, eins og Kourani, úr landi. „Kostnaður við að hafa hann í fangelsi er langtum, langtum meiri. Þessi tiltekni fangi var umtalsvert dýrari í allri vistun heldur en aðrir fangar,“ segir hún. „Það voru skemmdarverk. Það var starfsfólk fangelsanna sem fór í veikindaleyfi vegna þess hversu erfiður hann var. En eins og ég segi, stóra markmiðið: það var engin ætlun að inngilda hann inn í íslenskt samfélag og þess vegna finnst mér eðlilegt og bara raunar algjört almannahagsmunamúl að um leið og hann losnaði úr fangelsi færi hann beint úr landi,“ segir Þorbjörg. Frá því í júní hefur um 30 manns verið vísað úr landi. Þorbjörg segir miklu muna um það þar sem fangelsispláss eru alls 200. „Í langflestum tilvikum hefur verið um að ræða burðardýr, það er að segja fólk sem er að koma hingað til lands í þeim tilgangi einum saman að flytja fíkniefni til landsins. Hefur engin tengsl við landið, mjög oft býsna sorglegar sögur,“ segir Þorbjörg Sigríður. „Þetta er algengasta myndin og svo er auðvitað önnur dæmi þarna. En jú, það munar strax um þetta,“ segir hún.

Share this article