Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kosningar í Svíþjóð: Nær hnífjafnt

Read Full Article →

Forskot rauðu blokkarinnar minnkar í nýrri spá sænska ríkisútvarpsins SVT. Í útgönguspá SVT fyrr í kvöld var rauða blokkin með 51,3% atkvæða en er nú komin í 49,1%. Þar með munar aðeins einum þingmanni á rauðu og bláu blokkinni. Þingkosningunum í Svíþjóð lauk klukkan átta í kvöld á staðartíma þegar kjörstöðum var lokað. „Þetta er alveg ótrúlegt,“ segir Henrik Ekengren Oscarsson, prófessor í stjórnmálafræði, á kosningavöku SVT . „Núna eru stjórnarandstöðuflokkarnir með yfirhöndina, með einu þingsæti. Ég held að þetta muni sveiflast fram og til baka allt kvöldið og kannski jafnvel lengur, núna er þetta gríðarlega spennandi.“ Þessi spá tekur tillit til fleiri þátta en útgönguspá SVT sem spáði sigri Rauðu blokkarinnar. Fréttin var uppfærð.

Share this article