74% atkvæða í sænsku þingkosningunum sem fóru fram í dag hafa verið talin og staðan gæti varla verið jafnari. Rauða blokkin leiðir enn með einum þingmanni, 175 gegn 174 þingmönnum bláu borgaralegu blokkarinnar. Tölurnar eru í takt við spá sem sænska ríkisútvarpið SVT gaf út fyrr í kvöld. Í ljósi þess hve mjótt er á munum má leiða líkur að því að úrslit muni ekki liggja fyrir í nótt, jafnvel ekki fyrr en í næstu viku þegar öll atkvæði hafa verið talin. „Utankjörfundaratkvæði sem voru greidd seint og atkvæði frá útlöndum verða ekki fulltalin fyrr en á miðvikudag eða fimmtudag,“ hefur SVT eftir Lars Aden Lisinski, fjölmiðlafulltrúa hjá sænsku kosningastjórninni. Bæði Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterna og forsætisráðherra Svíþjóðar, og Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmanna, halda sig til hlés á kosningavökum flokka sinna og hafa enn hvorki tjáð sig um stöðuna né haldið ræður. Þingkosningunum í Svíþjóð lauk klukkan átta í kvöld á staðartíma þegar kjörstöðum var lokað. Í kosningunum árið 2022 bar bláa blokkin nauman sigur úr býtum og Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterna, varð forsætisráðherra í minnihlutastjórn með Kristilegum demókrötum og Frjálslynda flokknum. Fyrir nokkrum vikum voru allar líkur á valdaskiptum í landinu eftir kosningarnar en staðan núna gæti varla verið jafnari.