Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Jón Birgir verður nýr forstjóri Kviku

  • What: New CEO appointed at Kviku Bank
  • Impact: Leadership change within the bank
Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 13.9.2026 | 22:33 Jón Birgir verður nýr forstjóri Kviku Jón Birgir Jónsson. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Jón Birgir Jónsson hefur verið ráðinn forstjóri Kviku banka, en hann mun taka við af Ármanni Þorvaldssyni 1. desember, en Ármann hafði tilkynnt fyrr á árinu að hann hygðist láta af störfum. Frétt af mbl.is Ármann hefur ákveðið að láta af störfum Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að Jón Birgir búi yfir yfirgripsmikilli reynslu af alþjóðlegum fjármálamörkuðum og hafi starfað stærstan hluta starfsferils síns erlendis, í London og New York, hjá tveimur af stærstu eignastýringarfyrirtækjum heims. Á árunum 2013 til 2025 starfaði Jón Birgir hjá Neuberger Berman í London, þar sem hann var einn af eigendum félagsins og gegndi stjórnendastöðu. Hann kom til félagsins til að styrkja starfsemi þess á sviði alþjóðlegra skuldabréfafjárfestinga og sinnti síðar í auknum mæli samskiptum við fag- og stofnanafjárfesta. Þar áður starfaði hann frá árinu 1998 hjá J.P. Morgan Asset Management, bæði í New York og London, sem sjóðstjóri með áherslu á skuldabréf og alþjóðlega vaxtamarkaði. Jón Birgir lauk grunnnámi í stærðfræði við Háskóla Íslands og framhaldsnámi í fjármálaverkfræði við New York University. Þrátt fyrir langan starfsferil erlendis hefur hann haldið sterkum tengslum við íslenskt atvinnulíf, meðal annars sem stjórnarmaður í Bresk-íslenska viðskiptaráðinu. mbl.is/Karítas Umfangsmikil reynsla „Það er ánægjulegt að fá Jón Birgi í öflugt lið Kviku. Umfangsmikil reynsla hans af fjármálamörkuðum og sterk alþjóðleg tengsl munu nýtast Kviku vel í áframhaldandi þróun bankans. Kvika hefur vaxið og þróast hratt á undanförnum árum og er í dag með fjölbreyttan rekstur og spennandi tækifæri til frekari vaxtar og þróunar, bæði á Íslandi og í Bretlandi þar sem vel hefur tekist að byggja upp arðbæran rekstur. Umfangsmikil reynsla Jóns Birgis af fjármálamörkuðum og sterk alþjóðleg tengsl falla vel að þeim tækifærum sem Kvika stendur frammi fyrir,” segir Sigurður Hannesson, stjórnarformaður Kviku banka, í tilkynningunni. „Um leið vil ég þakka Ármanni Þorvaldssyni fyrir mikilvægt framlag hans til Kviku. Á forstjóratíð hans hefur bankinn vaxið verulega og þróað öflugan og fjölbreyttan rekstur. Fyrir þann árangur á Ármann, ásamt öllu því öfluga starfsfólki sem lagt hefur sitt af mörkum á þessari vegferð, miklar þakkir skildar,” bætir hann við. „Virkilega spennandi verkefni“ Jón Birgir Jónsson segist bæði stoltur og þakklátur fyrir traustið sem honum er sýnt. „Þetta er virkilega spennandi verkefni og bankinn er einstaklega vel í stakk búinn til áframhaldandi sóknar, með góða innviði, sterkan efnahagsreikning og framúrskarandi starfsfólk. Markmið okkar er og verður áfram að veita viðskiptavinum okkar öfluga fjármálaþjónustu,” segir Jón Birgir í tilkynningunni. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Gestir í velferðarkerfinu Sigurður Már Jónsson Valkostur við hvað í Þýskalandi? Fleira áhugavert Þorgerður ekki sú eina sem bregst við Vinstri stjórnarandstaðan með forystu Ísland þekktast fyrir saltfiskinn Of tímafrekt að nota alvöru kú Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki á leið á markað í bráð Nýtt apótek opnað í Hafnarfirði Eldisleyfi í höfn þrátt fyrir fordæmalausa andstöðu Sveinn tekur við sem framkvæmdastjóri SPAR opnar fimmtu verslunina Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Von um meiri tekjur á ferðamann Hermann tekur við sameinuðu félagi Krónan styrkist þrátt fyrir 150 milljarða halla Optise valið í Startup Battlefield Eldisleyfi í höfn þrátt fyrir fordæmalausa andstöðu Nýtt apótek opnað í Hafnarfirði Sveinn tekur við sem framkvæmdastjóri SPAR opnar fimmtu verslunina Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Von um meiri tekjur á ferðamann Er gervigreindin að verða óþekkjanleg? Anna Björk ráðin framkvæmdastjóri Expectus ráðgjafar Hermann tekur við sameinuðu félagi „Ekki sambærileg hugmynd og Play var með“ Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gervigreindarrisi kaupir íslenskt félag Neikvætt eigið fé Heimildarinnar Nýtt apótek opnað í Hafnarfirði Hækkun bankaskatts og aukin gjöld af ferðamönnum Hermann tekur við sameinuðu félagi SPAR opnar fimmtu verslunina Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi Eldisleyfi í höfn þrátt fyrir fordæmalausa andstöðu Áformin valda sárum vonbrigðum Pistlar » Sigurður Már Jónsson Gestir í velferðarkerfinu Sigurður Már Jónsson Valkostur við hvað í Þýskalandi? Fleira áhugavert Með vegabréfsáritun frá Jimi Hendrix! Óttast að harðari árásir hafi áhrif á Pólland Tvö högg í höfuðið: Fundu blóðuga exi á heimilinu Mikilvæg viðskiptatengsl þjóðanna í sjónmáli Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki á leið á markað í bráð Nýtt apótek opnað í Hafnarfirði Eldisleyfi í höfn þrátt fyrir fordæmalausa andstöðu Sveinn tekur við sem framkvæmdastjóri SPAR opnar fimmtu verslunina Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Von um meiri tekjur á ferðamann Hermann tekur við sameinuðu félagi Krónan styrkist þrátt fyrir 150 milljarða halla Optise valið í Startup Battlefield Eldisleyfi í höfn þrátt fyrir fordæmalausa andstöðu Nýtt apótek opnað í Hafnarfirði Sveinn tekur við sem framkvæmdastjóri SPAR opnar fimmtu verslunina Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Von um meiri tekjur á ferðamann Er gervigreindin að verða óþekkjanleg? Anna Björk ráðin framkvæmdastjóri Expectus ráðgjafar Hermann tekur við sameinuðu félagi „Ekki sambærileg hugmynd og Play var með“ Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gervigreindarrisi kaupir íslenskt félag Neikvætt eigið fé Heimildarinnar Nýtt apótek opnað í Hafnarfirði Hækkun bankaskatts og aukin gjöld af ferðamönnum Hermann tekur við sameinuðu félagi SPAR opnar fimmtu verslunina Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi Eldisleyfi í höfn þrátt fyrir fordæmalausa andstöðu Áformin valda sárum vonbrigðum

Share this article