Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Jón Birgir ráðinn for­stjóri Kviku

  • What: New CEO appointed at Kviku Bank
  • Impact: Leadership change within the bank
Read Full Article →

Jón Birgir Jóns­son hefur verið ráðinn for­stjóri Kviku banka og tekur við starfinu 1. desember næst­komandi. Jón Birgir hefur starfað stærstan hluta ferils síns er­lendis og býr yfir langri reynslu af alþjóð­legum fjár­málamörkuðum. Frá 2013 til 2025 starfaði hann hjá eignastýringar­fyrir­tækinu Neu­berger Ber­man í London, þar sem hann var einn af eig­endum félagsins og gegndi stjórn­endastöðu. Hann kom til félagsins til að styrkja starf­semi þess á sviði alþjóð­legra skulda­bréfa­fjár­festinga en sinnti síðar í auknum mæli sam­skiptum við fag- og stofnana­fjár­festa. Áður starfaði Jón Birgir frá árinu 1998 hjá J.P. Morgan Asset Mana­gement, bæði í New York og London, sem sjóð­stjóri með áherslu á skulda­bréf og alþjóð­lega vaxta­markaði. Hann lauk grunnnámi í stærðfræði við Háskóla Ís­lands og fram­halds­námi í fjár­mála­verk­fræði við New York Uni­versity. „Ég er fyrst og fremst stoltur og þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt. Þetta er virkilega spennandi verkefni og bankinn er einstaklega vel í stakk búinn til áframhaldandi sóknar, með góða innviði, sterkan efnahagsreikning og framúrskarandi starfsfólk. Markmið okkar er og verður áfram að veita viðskiptavinum okkar öfluga fjármálaþjónustu,“ segir Jón Birgir Jónsson, nýr forstjóri Kviku banka. Sjá einnig Næsti áfangastaður Ár­manns ákveðinn Sigurður Hannes­son, stjórnar­for­maður Kviku banka, segir reynslu Jóns Birgis og alþjóð­leg tengsl falla vel að þeim tækifærum sem bankinn stendur frammi fyrir. „Það er ánægjulegt að fá Jón Birgi í öflugt lið Kviku. Umfangsmikil reynsla hans af fjármálamörkuðum og sterk alþjóðleg tengsl munu nýtast Kviku vel í áframhaldandi þróun bankans. Kvika hefur vaxið og þróast hratt á undanförnum árum og er í dag með fjölbreyttan rekstur og spennandi tækifæri til frekari vaxtar og þróunar, bæði á Íslandi og í Bretlandi þar sem vel hefur tekist að byggja upp arðbæran rekstur. Umfangsmikil reynsla Jóns Birgis af fjármálamörkuðum og sterk alþjóðleg tengsl falla vel að þeim tækifærum sem Kvika stendur frammi fyrir. Um leið vil ég þakka Ármanni Þorvaldssyni fyrir mikilvægt framlag hans til Kviku. Á forstjóratíð hans hefur bankinn vaxið verulega og þróað öflugan og fjölbreyttan rekstur. Fyrir þann árangur á Ármann, ásamt öllu því öfluga starfsfólki sem lagt hefur sitt af mörkum á þessari vegferð, miklar þakkir skildar,“ segir Sigurður Hannesson, stjórnarformaður Kviku banka.

Share this article