Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 14.9.2026 | 7:00 „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir breytingar á verkaskiptingu heilbrigðisstétta bæði kalla á tæknilegar og lagalegar breytingar, en einnig menningarbreytingu innan kerfisins. Hún segir einnig segir mikilvægt að nýta menntun og sérþekkingu heilbrigðisstétta betur og að læknar sinni ekki verkefnum sem aðrar fagstéttir geta tekið að sér. mbl.is/Eyþór Rósa Margrét Tryggvadóttir [email protected] Setja bókamerki Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir samstöðu um að breyta fyrirkomulagi rannsóknarbeiðna ljósmæðra. Embætti landlæknis leggur nú lokahönd á skráningu starfsleyfisnúmera ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga sem síðan þarf að færa inn í tölvukerfin. Þá hyggst ráðherra leggja aftur fram frumvarp um rýmri ávísunarrétt heilbrigðisstétta. Samstaða er um að breyta fyrirkomulagi rannsóknarbeiðna ljósmæðra þannig að þær geti notað eigin starfsleyfisnúmer við beiðnirnar, að sögn Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra. Tæknileg útfærsla breytingarinnar er nú í vinnslu og segir Alma. Embætti landlæknis leggur nú lokahönd á lista yfir starfsleyfisnúmer ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga, sem síðan þarf að færa inn í tölvukerfin. „Þannig að þetta er bara verk í vinnslu,“ segir Alma í samtali við mbl.is. Lengst komin með ljósmæðurnar Mbl.is hefur að undanförnu fjallað um verkaskiptingu heilbrigðisstétta og nýtingu sérþekkingar þeirra. Hjúkrunarfræðingar, ljósmæður og lyfjafræðingar hafa bent á dæmi þar sem reglur, kerfi eða verkaskipting endurspegla að þeirra mati ekki nægilega þá þekkingu og ábyrgð sem stéttirnar búa yfir. Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, benti meðal annars á að ljósmæður þurfi að skrá númer læknis á rannsóknarbeiðnir í mæðravernd þótt þær sjálfar panti rannsóknina og beri ábyrgð á eftirfylgdinni. Alma segir markmiðið einmitt vera að nýta fagþekkingu ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga betur og gera þeim meðal annars kleift að panta tilteknar rannsóknir og fylgja niðurstöðum eftir. „Við erum svona kannski lengst komin með þetta varðandi ljósmæður og meðgönguvernd því að þær kunna hana náttúrulega mjög vel,“ segir Alma. Hún segir málið tvíþætt hvað ljósmæður varðar: annars vegar rannsóknarbeiðnir og hins vegar lyfjaávísanir. Rannsóknarbeiðnirnar hafi verið ræddar við lækna og fleiri fagstéttir og segir Alma samstöðu um að breytingin sé góð hugmynd og hvernig hún verði útfærð. Nú standi tæknilega vinnan eftir. Frumvarpið komið aftur inn Öðru máli gegnir um aukinn ávísunarrétt, þar sem breyta þarf lögum. Alma lagði fram frumvarp þess efnis á síðasta þingi en það náði ekki fram að ganga áður en þinginu lauk. „Það var eina frumvarpið mitt sem náði ekki að klárast,“ segir hún. Alma segir frumvarpinu þegar hafa verið skilað inn að nýju og að hún hyggist leggja það fram á nýju þingi. Með breytingunum á að rýmka ávísunarrétt fleiri heilbrigðisstétta. „Við erum að rýmka ávísunarrétt hjá ljósmæðrum, hjúkrunarfræðingum og lyfjafræðingum,“ segir Alma. Hún segir lyfjafræðilega þjónustu einnig falla undir frumvarpið en ráðuneytið hafi unnið sérstaklega að þeim málum. Mbl.is fjallaði um helgina um viðtal við Sigurbjörgu Sæunni Guðmundsdóttur, formann Lyfjafræðingafélags Íslands, sem segir sérþekkingu lyfjafræðinga ekki nýtta til fulls í heilbrigðiskerfinu.. Frétt af mbl.is Megum ekki láta óttann stöðva umræðuna Læknirinn sinni ekki því sem aðrir geta gert Alma segir breytingarnar hluta af stærra verkefni við að nýta menntun og sérþekkingu heilbrigðisstétta betur. Hún segir þetta eina af mörgum leiðum sem þurfi að fara til að takast á við áskoranir heilbrigðiskerfisins, þannig að verkefni lendi ekki sjálfkrafa hjá lækni þegar önnur fagstétt hefur þekkingu til að sinna þeim. „Þannig að læknirinn sé ekki að gera eitthvað sem sjúkraþjálfarinn eða hjúkrunarfræðingurinn eða ljósmóðirin getur gert og svo koll af kolli.“ Alma segir breytingarnar ekki eingöngu snúast um lög og reglur. „Þetta er bæði menningarbreyting,“ segir hún og bendir jafnframt á að í sumum tilvikum þurfi lagabreytingar. Alma segir ráðuneytið hafa farið þá leið að skoða eina starfsgrein í einu og að mikilvægt sé að breytingar á verkaskiptingu séu unnar í samráði við þær stéttir sem nú sinna viðkomandi verkefnum. „Það er ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það,“ segir Alma. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Skaðar allan heiminn“ „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Í öllum verkefnum og alltaf á vettvangi Vinstriblokkin með naumt forskot Vikumatseðill sem sparar bæði tíma og peninga Umræðan Kosningapólitík Við sögðum nei við ESB – næst þarf þjóðarsátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? Trump sussar á gervigreindargagnrýnendur Of tímafrekt að nota alvöru kú Vinstri stjórnarandstaðan með forystu Mest lesið Í gær Í vikunni Björgunarsveit komin upp við vegg Of tímafrekt að nota alvöru kú Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast „Fyrsta ferðin í svona glæsikerru“ Hópslagsmál í bílakjallara Aflmikill Otter skilar sínu Hitinn gæti náð 15 stigum Tvö högg í höfuðið: Fundu blóðuga exi á heimilinu Fjórir slökkviliðsbílar sendir í Hafnarfjörð Björgunarsveit komin upp við vegg Þriðjudagarnir urðu heilagir Fjórir slökkviliðsbílar sendir í Hafnarfjörð Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Taka höndum saman: 1.800 fermetra stækkun Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Átti von á góðri þátttöku flugvirkja Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Rannsakað sem alvarlegt atvik Nýjast á mbl.is » „Skaðar allan heiminn“ „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Í öllum verkefnum og alltaf á vettvangi Vinstriblokkin með naumt forskot Vikumatseðill sem sparar bæði tíma og peninga Umræðan Kosningapólitík Við sögðum nei við ESB – næst þarf þjóðarsátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jafnaðarmenn tilbúnir að stjórna landinu Munar aðeins einum þingmanni Trump biður Selenskí að hætta árásum Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Mest lesið Í gær Í vikunni Björgunarsveit komin upp við vegg Of tímafrekt að nota alvöru kú Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast „Fyrsta ferðin í svona glæsikerru“ Hópslagsmál í bílakjallara Aflmikill Otter skilar sínu Hitinn gæti náð 15 stigum Tvö högg í höfuðið: Fundu blóðuga exi á heimilinu Fjórir slökkviliðsbílar sendir í Hafnarfjörð Björgunarsveit komin upp við vegg Þriðjudagarnir urðu heilagir Fjórir slökkviliðsbílar sendir í Hafnarfjörð Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Taka höndum saman: 1.800 fermetra stækkun Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Átti von á góðri þátttöku flugvirkja Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Rannsakað sem alvarlegt atvik

Share this article