Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Breyta drögum að reglugerð eftir háværa gagnrýni lækna

Read Full Article →

Alma Möller heilbrigðisráðherra segir að drögum að reglugerð um heilsugæslu verði breytt í kjölfar háværrar gagnrýni lækna varðandi ákvæði um heimilislækna. Í stefnuyfirlýsingu stjórnvalda segir að unnið verði að þjóðarmarkmiði um fastan heimilislækni fyrir alla landsmenn. Í drögunum er hins vegar kveðið á um að fólk skuli skráð á ákveðna heilsugæslu­stöð samkvæmt eigin vali en annars sam­kvæmt lög­heimili og „að jafnaði á þver­fag­legt teymi heil­brigðis­starfs­manna“ – og því ekki endilega gert ráð fyrir því að fólk sé skráð á fastan heimilis­lækni. Orðalagi verði breytt Alma segir í aðsendri grein á Vísi að hún skilji gagnrýni lækna á að orðalagið sé ekki fyllilega skýrt og afdráttarlaust. Hún segir að ákvæðið hefði átt að orðast þannig að einstaklingur sé „að jafnaði skráður hjá heimilislækni eða á þverfaglegt teymi heilbrigðisstarfsmanna“ – reglugerðinni verði breytt og tími til umsagna lengdur. „Viðbrögð lækna við þessu – því að í reglugerðardrögunum sé ekki orðað skýrt og afdráttarlaust að einstaklingur skuli að jafnaði skráður hjá tilgreindum heimilislækni – eru skiljanleg,“ segir Alma í greininni. Þjóðarmarkmið um fastan heimilislækni fyrir alla landsmenn hafi verið kynnt sem tíu ára markmið enda ljóst að það taki tíma að uppfylla það vegna umtalsverðs skorts á heimilislæknum. Sérnámslæknum í heimilislækningum hafi fjölgað, úr 38 árið 2017 í 120 árið 2026, og þeir hafi aldrei verið fleiri.

Share this article