Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins (SA) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem samtökin segjast vilja „án tafar“ setja í forgang umbætur á umgjörð vinnumarkaðarins í samstarfi við launþegahreyfinguna og stjórnvöld. Hópur verkalýðsfélaga, þar á meðal VR hafa kallað eftir því í kjölfar þess að forsendurákvæði kjarasamninga á almennum vinnumarkaði virkjaðist að fyrirtæki haldi aftur af verðhækkunum til að ná niður verðbólgu og vöxtum. SA segjast vilja leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólgu með því að fyrirtæki haldi aftur af verðhækkunum eins og frekast er unnt. Á móti þurfi ríki og sveitarfélög að ganga fram með góðu fordæmi og stilla hækkunum gjaldskráa í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þörf sé á samstilltu átaki. „Sá forsendubrestur sem nú er orðinn þarfnast mun víðtækari aðgerða en skammtíma leiðréttingar á stöðu sem að öðru leyti er ósjálfbær. Markmiðið þarf að vera vinnumarkaðslíkan sem styður við stöðugt verðlag og lægri vexti, sjálfbæran kaupmáttarvöxt og samkeppnishæft atvinnulíf. Varanlegur árangur krefst varanlegra umbóta.“ SA bendir á að í kjölfar kjarasamninga á almennum markaði árið 2024 hafi verið samið um hækkanir til opinberra starfsmanna umfram þær sem Stöðugleikasamningurinn geymdi. „Það sem af er samningstíma gildandi kjarasamninga hafa laun hækkað meira en um var samið og langt umfram framleiðnivöxt. Slík þróun leiðir óhjákvæmilega til verðbólguþrýstings og óstöðugleika. Verði þessi vítahringur ekki rofinn er óraunhæft að hafa væntingar um hóflegri verðbólguvæntingar. Skammtímalausnir geta skilað tímabundnum árangri, en viðvarandi verðbólguvandi verður ekki leystur með þeim einum. Það verður að rjúfa vítahringinn.“