Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 14.9.2026 | 13:24 „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Skattar á Íslandi Beint: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Tekjuskattur einstaklinga eykst um 3,1 milljarð Eldsneytisverðið mun hækka Áfengisgjöldin þau hæstu í heimi Afleit reynsla af Skattinum » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð „Algjörlega óþolandi og ólíðandi“ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Flytur tjúgufánamálið nú í áttunda skipti Hann er eflaust betri söngvari » Fleiri tengdar fréttir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir endalausa skuldasöfnun ríkissjóðs ekki ganga. Í pallborði á fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í dag, sem bar yfirskriftina: Hærri skattar, töpuð tækifæri? benti Daði á skuldasöfnun ríkissjóðs í tíð fyrri ríkisstjórnar. Sagði Daði það pirra sig mest í umræðunni að fyrri stjórnvöld gangist ekki við þeirri ábyrgð sem fylgir því að eyða peningum sem ekki voru til árum saman. Frétt af mbl.is Segir íslenska banka standa höllum fæti í samkeppni Frétt af mbl.is Beint: Hærri skattar, töpuð tækifæri? „Hvað er að þessu liði?“ „Frá 2019, 20, 21, 22, 23, 24, 25. Endalaus halli á rekstri ríkissjóðs, alveg sama hvernig áraði og láta síðan eins og sá reikningur endi einhvers staðar annars staðar en hjá íslensku þjóðinni. Hvað er að þessu liði? Það er bara ein leið til að fjármagna ríkissjóð. Ætlaði hún að kaupa happdrættismiða? Ég bara botna ekkert í þessu,“ sagði Daði og vísaði til þess að stjórnvöld þess tíma hafi bætt við skuldir ríkissjóðs sem nemur um 900 milljörðum króna. „Ekki sérstaklega maklegt“ Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, svaraði Daða og sagði ekki sérstaklega maklegt að lítið væri gert úr því að niðurstaðan af rekstri ríkissjóðs hafi verið hallalaus 2016, 17 og 2018. „Man einhver hvað gerðist 2019? Heilt flugfélag hvarf. Man einhver hvað gerðist 2020? Jú, eitt stykki heimsfaraldur, svo stríð, svo jarðeldar. Beinn kostnaður hljóp á mörg hundruð milljörðum.“ Hildur sagði þáverandi ríkisstjórn hafa verið komna á rétta leið. Vextir á niðurleið, verðbólga einnig þangað til ný ríkisstjórn tók við og skipti um kúrs. „Og við vitum hvar við stöndum núna í þeirri á. Síðustu tvö ár í tíð þessarar ríkisstjórnar var bætt í hallann. Út af hverju? Út af einhverjui innanhúss pólitísku bixi sem er alltaf verkefni stjórnmálamannanna. Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, sagði í stefnuræðu sinni haustið 2023 að 2025 yrði að öllum líkindum hallalaust. Það gerðist ekki því það voru teknar aðrar ákvarðanir.“ Ekki stóra málið í stóra samhengi hlutanna Hildur sagðist að sjálfsögðu taka undir það markmið að hallaleysi verði á ríkisrekstrinum en milljarður til eða frá, mínus eða plús, þó þeir væru tíu eða tuttugu væri ekki stóra málið í stóra samhengi hlutanna þegar undir væri samfélag með viðkvæmum og dýrmætum atvinnurekstri þar sem allir væru mikilvægir hlekkir í þeirri keðju. Hún sagði alla þurfa að fá að halda sjó, allt verði að geta spilað saman og að það væri áfellisdómur að nú sé samt stefnt að því að fyrirhuguð fjárlög muni auka verðbólgu. „Þið fáið bara ekki klapp fyrir það frá mér, því miður,“ sagði Hildur og beindi orðum sínum að fjármálaráðherra. Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eyþór Milljarður hér og milljarður þar Daði svarði og sagði að milljarður hér og milljarður þar verði fljótt að 900 milljörðum. „Það er vandamálið. Ég er ekki að deila um að hér hafi komið áföll. Það sem ég skil ekki er að þeir sem að tóku ákvarðanir um að fjármagna viðbrögðin með lánum halda að það þurfi ekki að borga þau til baka. Í hvaða heimi er það þannig? Og séu núna með böggum hildar yfir því að reikningurinn falli á þjóðina. Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar þegar að ríkissjóður rekur sig á lánum?“ Tengdar fréttir Skattar á Íslandi Beint: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Tekjuskattur einstaklinga eykst um 3,1 milljarð Eldsneytisverðið mun hækka Áfengisgjöldin þau hæstu í heimi Afleit reynsla af Skattinum » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð „Algjörlega óþolandi og ólíðandi“ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Flytur tjúgufánamálið nú í áttunda skipti Hann er eflaust betri söngvari » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Drakk og reykti eins og strompur í landsliðsverkefnum Eldar á svölunum á meðan eldhúsið er í rúst: „Ostasamloka lífs þíns“ Vilja leiða í breyttri heimsskipan Lengsta sem Íslendingar hafa náð Umræðan Kosningapólitík Við sögðum nei við ESB – næst þarf þjóðarsátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikilvæg viðskiptatengsl þjóðanna í sjónmáli Hundruð flýja elda á vinsælum ferðamannastað Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Tvö högg í höfuðið: Fundu blóðuga exi á heimilinu Mest lesið Í gær Í vikunni Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Hópslagsmál í bílakjallara Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Björgunarsveit komin upp við vegg Of tímafrekt að nota alvöru kú Flugvirkjar ósáttir með yfirlýsingar Boga Nils Fagna endurskoðun vaxtarmarka Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hitinn gæti náð 15 stigum Björgunarsveit komin upp við vegg Þriðjudagarnir urðu heilagir Fjórir slökkviliðsbílar sendir í Hafnarfjörð Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Taka höndum saman: 1.800 fermetra stækkun Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Átti von á góðri þátttöku flugvirkja Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Björgunarsveit komin upp við vegg Nýjast á mbl.is » „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Drakk og reykti eins og strompur í landsliðsverkefnum Eldar á svölunum á meðan eldhúsið er í rúst: „Ostasamloka lífs þíns“ Vilja leiða í breyttri heimsskipan Lengsta sem Íslendingar hafa náð Umræðan Kosningapólitík Við sögðum nei við ESB – næst þarf þjóðarsátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugvirkjar ósáttir með yfirlýsingar Boga Nils Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Jafnaðarmenn tilbúnir að stjórna landinu „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Hópslagsmál í bílakjallara Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Björgunarsveit komin upp við vegg Of tímafrekt að nota alvöru kú Flugvirkjar ósáttir með yfirlýsingar Boga Nils Fagna endurskoðun vaxtarmarka Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hitinn gæti náð 15 stigum Björgunarsveit komin upp við vegg Þriðjudagarnir urðu heilagir Fjórir slökkviliðsbílar sendir í Hafnarfjörð Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Taka höndum saman: 1.800 fermetra stækkun Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Átti von á góðri þátttöku flugvirkja Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Björgunarsveit komin upp við vegg

Share this article