Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Japanir og Kóreumenn í túnfisk sunnan Íslands

Read Full Article →

Áhöfnin á varðskipinu Þór hefur annast eftirlit djúpt suður af landinu í síðustu dögum. Meðal annars var fylgst með veiðum um 15 túnfiskveiðiskipa frá Japan og Suður-Kóreu. Þau eru að veiðum rétt sunnan við íslensku efnahagslögsöguna. Skipverji á varðskipinu Þór á útkikkinu. Túnfiskveiðiskip frá þessum löndum hafa á undanförnum áratugum veitt á þessum slóðum utan íslensku lögsögunnar en mikilvægt er að fylgjast með umferð á jöðrum efnahagslögsögu Íslands, segir í færslu Landhelgisgæslunnar á samfélagsmiðlum. Með slíku eftirliti er meðal annars fylgst með því að skip haldi sig utan íslensku efnahagslögsögunnar þegar þau eru að veiðum. Sum skipanna leita til hafna á Íslandi til að sækja vistir. Meðfylgjandi myndir voru teknar af varðskipinu Þór um helgina.

Share this article