Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Forysta Íslands umtöluð

Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.2.2026 | 14:50 Forysta Íslands á sviði jafnréttismála umtöluð Íslenski ráðherrann er höfðinu hærri en starfsbróðirinn japanski en Japanar líta mjög til forystu Íslendinga á sviði jafnréttismála. Ljósmynd/Stjórnarráðið „Þetta er náttúrulega eitt helsta samstarfsríki okkar í Asíu, ekki síst á sviði viðskipta. Við erum að halda upp á 70 ára formlegt stjórnmálasamband og nú eru 25 ár síðan við komum á fót sendiráði hér í Tókýó og Japanar gerðu það sama heima,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, stödd í opinberri vinnuheimsókn í Japan. Segir hún gagnkvæma sendiráðsstofnun á sínum tíma hafa verið mikið gæfuspor í samskiptum Íslands og Japans og segir því næst af fundi sínum með Toshimitsu Motegi starfsbróður sínum. „Við ræddum það einmitt á fundinum að bæði ríkin eru eyríki og þar búa fiskveiðiþjóðir. Þótt vegalengdin sé löng á milli eru þessar þjóðir að færast nær hvor annarri í ljósi þróunar heimsmála, hvort sem það er á sviði varnar- og öryggismála, meðal annars á norðurslóðum, eða viðskipta. Viðskiptin þurfa að vera þannig að allar þessar virðiskeðjur séu sjálfbærar. Það er mikið að ræða,“ segir Þorgerður enn fremur. Átta japanskir karlmenn funda með þremur íslenskum konum í Tókýó. Þorgerður segir Japana líta mjög til Íslands í jafnréttismálum svo ætla má að kynjahlutföll gestgjafahópsins verði önnur í næstu heimsókn. Ljósmynd/Stjórnarráðið Litlar þjóðir tengjast á ögurstundu Hún segir fiskútflutning Japana að sínu mati sæta óeðlilegum tollum og bendir á tolla á Bretland og Kanada til samanburðar. „Við erum að tala fyrir því og bara að auka skilning og samskipti milli ríkja. Þetta var afskaplega góður fundur,“ segir ráðherra af fundi þeirra Motegis. Þá hafi jafnréttismál borið á góma og ekki bara á fundinum með Motegi. „Þeir ráðherrar sem ég ræddi við hafa allir talað um okkar þekkingu og forystu á sviði jafnréttismála. Japanar horfa mjög til okkar þar og greinilegt er að þeir ætla sér að afla upplýsinga um hvað gengur og hvað gengur síður á þeim vettvangi,“ segir hún. Þorgerður segir litlar þjóðir nú tengjast enn betur saman á tímum umróts og átaka. Þar þurfi líkt þenkjandi þjóðir að standa saman og það hafi gestgjafarnir í Japan verið henni sammála um. Tvö japönsk herskip væntanleg Í gær heimsótti Þorgerður sjávarútvegsfyrirtækið Icelandic Asia, stærsta útflytjanda á fiski til Japans, auk þess sem hún hefur heimsótt tæknifyrirtæki og rætt við ráðgjafa á sviði öryggis- og varnarmála. „NATO er meðal annars að efla enn frekar samstarfið við Kyrrahafsríkin fjögur, Japan, Suður-Kóreu, Nýja-Sjáland og Ástralíu, allt til þess að efla bæði samstarf á þessu sviði en líka til að tengja þau inn í öryggi á norðurslóðum og á Atlantshafinu og það er gaman að segja frá því að tvö japönsk herskip koma til Íslands í æfingaferð í sumar sem er bara dæmi um hvernig við erum að vinna alltaf betur og betur saman,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra af vinnuheimsókn sinni til samstarfsþjóðar langt í austri. Piers Morgan viðraði áhyggjur sínar Forysta Íslands umtöluð Vestfirsk sýn á uppbyggingu atvinnu „Ég hef heyrt sögur af stórum karlmönnum í fósturstellingunni eftir þessa súpu“ „Það var bara allt á floti“ Bjartari tímar fram undan Vítahringur skuldsetningar ógnar Félagsbústöðum Fleira áhugavert Piparúða beitt gegn ungum dreng Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Tvöföld veikindi hjá því opinbera Jakobína mætt aftur 70 árum síðar „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Samfylkingin ekki lengur stærst Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Þorsteinn Pétur sýknaður Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður „Maður heldur að svona gerist ekki“ Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Piers Morgan viðraði áhyggjur sínar Forysta Íslands umtöluð Vestfirsk sýn á uppbyggingu atvinnu „Ég hef heyrt sögur af stórum karlmönnum í fósturstellingunni eftir þessa súpu“ „Það var bara allt á floti“ Bjartari tímar fram undan Vítahringur skuldsetningar ógnar Félagsbústöðum Fleira áhugavert Svartsýni í könnun SI um markaðinn Friðarráð Trumps fundar í fyrsta sinn Pútín, konur og greiðar: Rússatengsl Epsteins Veita undanþágur vegna líkbrennslu „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Samfylkingin ekki lengur stærst Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Þorsteinn Pétur sýknaður Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður „Maður heldur að svona gerist ekki“ Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article