Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki verið mjög stór kostnaðarliður

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 15.9.2026 | 6:00 Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Erfitt hefur verið að fá eðlilegan kostnað staðfestan. mbl.is/Sigurður Bogi Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Í stóra samhenginu hefur þetta ekki verið mjög stór kostnaðarliður, en hann er vandasamur og flókinn í allri umsýslu,“ segir Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Hann segist aðspurður ekki hafa á hraðbergi hver kostnaðurinn hafi verið á sl. ári, en telur þó að hann hafi farið yfir 100 milljónir króna. Hann var spurður um þann kostnað sem fallið hefur á Sjúkratryggingar vegna einstaklinga sem þurft hafa að leita sér lækninga utan EES-svæðisins vegna veikinda sinna. Frá því hefur verið greint í Morgunblaðinu að að breytingar á lögum um sjúkratryggingar sem samþykktar voru á Alþingi sl. vor hafi það m.a. í för með sér að einstaklingar sem ferðast til landa utan EES frá og með 1. janúar nk., verða ekki tryggðir fyrir þeim kostnaði sem þeir kunna að verða fyrir vegna veikinda eða slysa. Var bent á það í tilkynningu stjórnvalda þar sem kunngjört var um breytinguna að rétt væri af ferðamönnum á að kanna tryggingarétt sinn hjá tryggingafélögum sem og kortatryggingar sínar. „Þegar við endurgreiðum svona kostnað innan Evrópu þá byggist það á skýru regluverki. Við erum með samstarfsaðila í allri Evrópu sem við berum undir hvort þjónustuveitandi sé raunverulegur og hvort kostnaður sé eðlilegur m.t.t. þess hvað greitt er fyrir þjónustuna í viðkomandi landi. En þegar við förum út fyrir þetta kerfi þá höfum við lítil tengsl og það er erfitt að fá staðfest hvað er eðlilegur kostnaður og annað slíkt. Það er þetta sem hefur valdið okkur erfiðleikum í framkvæmdinni,“ segir Sigurður. Aðeins greitt á ríkisspítölum Hann nefnir að almennt tíðkist ekki slík réttindi í sambærilegum sjúkratryggingakerfum og hinu íslenska. Það sé yfirleitt ekki greitt fyrir heilbrigðisútgjöld alls staðar í heiminum og telur hann fá ef en nokkur sjúkratryggingakerfi bjóði upp á slíkt. Spurður um áhrif þeirrar lagabreytingar, að Sjúkratryggingar Íslands greiði aðeins sjúkrakostnað á ríkisreknum spítölum innan EES-svæðisins, segir Sigurður að nákvæmara sé að orða breytinguna þannig að hún gildi ekki um þjónustu hjá veitendum heilbrigðisþjónustu sem ekki eru hluti af opinberu sjúkratryggingakerfi í því landi þar sem þjónustan er veitt. „Heilbrigðiskerfin eru mjög mismunandi. Sums staðar er mikill opinber rekstur, en annars staðar mikill einkarekstur. Þetta snýst um það að ef viðkomandi rekstraraðili er að veita sjúkratryggingakerfi síns lands þjónustu og endurgreiðslusamband er þar á milli, þá er þeim kostnaði mætt af Sjúkratryggingum Íslands. En ef er um að ræða t.d. einkarekið sjúkrahús, eins og t.d. á Spáni sem er ekki í starfstengslum við opinberar sjúkratryggingar á Spáni, þá er sá kostnaður ekki endurgreiddur lengur,“ segir Sigurður. Geta skoðað einstök tilvik Þannig að ef einhver fær hjartaáfall og er svo óheppinn að vera fluttur á slíkan spítala, þarf hann þá að greiða reikninginn sjálfur? „Það er reyndar þannig að ef einhver verður fyrir slysi eða fær hjartaáfall og farið er með hann á einkarekinn spítala, þá munum við að sjálfsögðu skoða slík dæmi sérstaklega og höfum heimildir til þess,“ segir hann. Sigurður segir einnig að ýmsar spurningar hafi vaknað varðandi framkvæmdina vegna umræddra lagabreytinga og verið sé að fara yfir þær, bæði í Sjúkratryggingum sem og í ráðuneytinu. Hugsanlegt sé að gefnar verði viðbótarleiðbeiningar til almennings vegna framkvæmdarinnar. Hann nefnir einnig að samtal sé í gangi við tryggingafélögin með það í huga að þær tryggingar sem fólk kaupi sér séu eins skýrar og kostur sé. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » NATO skaut niður dróna yfir Litháen Lægir og léttir víða til Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Andlát: Hólmbert Friðjónsson Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Langvarandi ósiður“ hins opinbera Hvað ætla fyrirtækin að gera? Segir íslenska banka standa höllum fæti í samkeppni „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Mest lesið Í gær Í vikunni Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Snjallgleraugun gætu orðið að næstu tæknibyltingu Hildur vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal Landvörður á Hornströndum í 26 sumur Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Íslensk börn einu og hálfu ári eftir á Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Það andar ekki köldu í Hafnarfirði Biðja fólk að halda sig inni og loka gluggum Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Björgunarsveit komin upp við vegg Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Nýjast á mbl.is » NATO skaut niður dróna yfir Litháen Lægir og léttir víða til Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Andlát: Hólmbert Friðjónsson Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Biðja fólk að halda sig inni og loka gluggum „Langvarandi ósiður“ hins opinbera „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Mest lesið Í gær Í vikunni Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Snjallgleraugun gætu orðið að næstu tæknibyltingu Hildur vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal Landvörður á Hornströndum í 26 sumur Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Íslensk börn einu og hálfu ári eftir á Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Það andar ekki köldu í Hafnarfirði Biðja fólk að halda sig inni og loka gluggum Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Björgunarsveit komin upp við vegg Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn

Share this article