Innlent | mbl | 9.7.2026 | 8:45 Lýsir áhyggjum af aukinni kostnaðarþátttöku Frá sjúkraþjálfun á Reykjalundi. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Félag sjúkraþjálfara lýsir yfir áhyggjum af fyrirhugaðri gjaldtöku hins opinbera á þjónustu sjúkraþjálfara sem heilbrigðisráðuneytið hefur boðað frá og með 1. september en samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins verður tekið upp sérstakt komugjald sem fellur utan hins almenna greiðsluþátttökukerfis og leggst beint á notendur þjónustunnar. Í tilkynningu Félags sjúkraþjálfara segir að ljóst sé að um verulega aukningu á kostnaði verði að ræða fyrir þá sem nýta sér sjúkraþjálfun og áætlar félagið að kostnaðarþátttaka almennings aukist um ríflega milljarð króna miðað við notkunartölur ársins 2025. Þar af megi ætla að ellilífeyrisþegar greiði að minnsta kosti 340 milljónir króna til viðbótar og almennir notendur um 580 milljónir króna. Frétt af mbl.is Komugjöld á heilsugæslu tvöfaldast Varaði við áhrifum á aðgengi almennings Félagið segist hafa varað við því að slík gjaldtaka geti haft áhrif á aðgengi almennings að sjúkraþjálfun, einkum hjá þeim sem þurfa á viðvarandi þjónustu að halda eða búa við þrengri fjárhagsstöðu. Þá gagnrýnir félagið að sérstök gjaldtaka sé eingöngu lögð á þjálfun og endurhæfingu og telur að hún geti seinkað endurhæfingu og dregið úr líkum á að fólk leiti sér nauðsynlegrar aðstoðar. Í tilkynningunni segir jafnframt að Félag sjúkraþjálfara hafi ekki fengið tækifæri til að koma að endanlegri útfærslu gjaldtökunnar áður en hún var kynnt opinberlega, heldur hafi félagið fengið upplýsingar um málið í gegnum fjölmiðla og opinbera tilkynningu. Nú vinni félagið að því að afla frekari upplýsinga frá ráðuneytinu um tæknilega útfærslu breytinganna. Misvísandi framsetning Félagið gagnrýnir einnig framsetningu heilbrigðisráðuneytisins á kostnaði vegna samnings við sjúkraþjálfara og telur misvísandi að vísað sé til þess að kostnaður sé 3,4 milljörðum króna yfir fjárlögum. Að mati félagsins stafi aðeins lítill hluti þeirrar fjárhæðar af aukinni þjónustu sjúkraþjálfara en stjórnvöld hafi vanáætlað þjónustuþörf og vanfjármagnað samninginn. Að mati félagsins mun kostnaður margra sjúklinga aukast verulega. Þeir sem þurfa vikulega sjúkraþjálfun gætu greitt 60–80 þúsund krónum meira á ári, en hjá öldruðum sem sækja þjónustu vikulega gæti árlegur kostnaður aukist um 40–50 þúsund krónur. Félagið telur því brýnt að sett verði skýrt hámark á greiðslur einstaklinga vegna komugjalda og hvetur stjórnvöld til samráðs um útfærslu breytinganna. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bláa Lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Lýsir áhyggjum af aukinni kostnaðarþátttöku Messi mun skora fleiri mörk Fyrirliðinn sagður vilja á brott Hvað kostar að gista á bestu tjaldsvæðum landsins? Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Samkeppni snýst um meira en fjölda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Straumurinn hlýtur að liggja austur Ætla að skoða ný tækifæri með íbúunum Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Lögregla óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Fá gefins pylsu ef henni er stolið Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg „Það er á milli Grænlands og Danmerkur“ Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn Ætla að skoða ný tækifæri með íbúunum Sóttu kaldan og blautan ferðamann Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Myndir: Aðgerðir gengu vel við Þjórsá Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Nýjast á mbl.is » Bláa Lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Lýsir áhyggjum af aukinni kostnaðarþátttöku Messi mun skora fleiri mörk Fyrirliðinn sagður vilja á brott Hvað kostar að gista á bestu tjaldsvæðum landsins? Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Samkeppni snýst um meira en fjölda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árásarmaðurinn 16 ára: Tvær stúlkur særðar Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ Að minnsta kosti tveir að verki Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Fá gefins pylsu ef henni er stolið Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg „Það er á milli Grænlands og Danmerkur“ Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn Ætla að skoða ný tækifæri með íbúunum Sóttu kaldan og blautan ferðamann Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Myndir: Aðgerðir gengu vel við Þjórsá Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu