Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fuglar og menn framlag Íslands til Goya-verðlaunanna

Read Full Article →

Heimildarmyndin Fuglar og menn verður framlag Íslands til Goya-verðlaunanna spænsku á næsta ári. Dómnefnd Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar valdi hana úr flokki þeirra mynda sem komu til greina. Ingvar Þórðarson, Ragnar Axelsson og Mika Kaurismaki leikstýrðu myndinni. Í henni er fjallað um sérstakt bæjarfélag í umsjá hjónanna Ólafs og Jóhönnu. Bæjarbúarnir eru æðarfuglar sem þangað koma til að ala upp afkvæmi sín. Dómnefndin sagði að myndinni tækist að gera það hversdagslega óvenulegt, hún væri falleg, lágstemmd og áhrifamikil frásögn um samvistir, samvinnu og ósýnileg tengsl sem móti mannlegt samfélag. Skjáskot úr myndinni Fuglar og mennRÚV

Share this article