Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ásmundur verður forseti Félagsdóms

Read Full Article →

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað Ásmund Helgason forseta Félagsdóms. Hann var varaforseti dómsins en tekur við forsetaembættinu af Ásgerði Ragnarsdóttur sem lét af því embætti þegar hún var skipuð dómari við Hæstarétt. Björn L. Bergsson, dómari við Félagsdóm, hefur verið skipaður varaforseti dómsins og Hólmfríður Gísladóttir hefur verið skipuð dómari. Ragnar Þór skipaði dómarana þrjá í sín hlutverk að fenginni tilnefningu Hæstaréttar um skipan dómsins. Ásmundur Helgason.Úr einkasafni

Share this article