Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 48,3 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2026 eða sem nemur 3,8% af vergri landsframleiðslu (VLF) ársfjórðungsins, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar . Til samanburðar nam hallinn á öðrum ársfjórðungi 2025 3,0% af VLF. Félagslegar tilfærslur jukust um 23% Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera á öðrum fjórðungi hafi aukist um 4,3% milli ára. Þar vega þyngst auknar tekjur vegna skatta á tekjur og hagnað sem áætlað er að hafi aukist um 6,2% ásamt auknum tekjum vegna skatta á vöru og þjónustu sem jukust um 5,3%. Gert er ráð fyrir að heildarútgjöld hafi aukist um 6,1% á öðrum ársfjórðungi 2026. Samneysluútgjöld hins opinbera héldu áfram að aukast en áætlað er að launakostnaður hafi aukist um 7,2% á verðlagi ársins og útgjöld vegna kaupa á vöru og þjónustu um 8,5%. „Aukning í félagslegum tilfærslum til heimila vegur þungt í útgjaldaaukningu hins opinbera en bráðabirgðagögn benda til þess að þær hafi aukist um 22,9%.“ Félagslegar tilfærslur innan almannatryggingakerfisins á öðrum ársfjórðungi jukust um 18,9 milljarða króna eða um 27% milli ára og námu 87,9 milljörðum króna. 130 milljarða halli á síðasta ári Hagstofan birti einnig tölur yfir afkomu hins opinbera á árinu 2025, sem nam 130,8 milljörðum króna eða um 2,6% af VLF. Til samanburðar var afkoman neikvæð um 187,2 milljarða króna árið 2024 en á því ári höfðu viðbrögð við náttúruhamförum töluverð áhrif á útgjaldaaukningu ársins. Heildartekjur ríkissjóðs jukust um 7,6% á milli ára og námu alls 1.519,6 milljörðum króna. Á sama tíma jukust tekjur sveitarfélaga um 9,1% og námu alls 676,5 milljörðum króna. Útgjöld hins opinbera námu 2.255,9 milljörðum króna árið 2025 eða sem nemur um 45,7% af VLF. Til samanburðar voru útgjöld hins opinbera 2.157,5 milljarðar árið 2024 eða 47,1% af VLF. Útgjöld ríkissjóðs jukust um 3,2% á milli ára, útgjöld sveitarfélaga um 8,0% og útgjöld almannatrygginga um 12,1%.