Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stefnir í halla þrátt fyrir 40 milljarða búhnykk

Read Full Article →

Útlit er fyrir að ríkissjóður verði rekinn með tugmilljarða króna halla á árinu 2026 þrátt fyrir að Kerecis muni greiða í formi eingreiðslu 40 milljarða skatt í ríkissjóð Íslands vegna kaupa danska móðurfélagsins, Coloplast, á hugverkaréttindum íslenska lækningavörufyrirtækisins. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027, sem birt var í síðustu viku, kemur fram að áætlað sé að ríkissjóður verði rekinn með 67,5 milljarða króna halla í ár. Til samanburðar gerði fjárlagafrumvarp fyrir árið 2026 ráð fyrir að ríkissjóður yrði rekinn með 15 milljarða halla í ár en eftir meðferð Alþingis var hallinn áætlaður um 28,1 milljarður króna. Sjá einnig Hallinn 340% meiri en í frumvarpinu 2026 Það vakti mikla athygli í febrúar 2025 þegar greint var frá ofangreindri sölu hugverkarréttinda Kerecis til danska móðurfélagsins. Um er að ræða hátt í 200 einkaleyfi í eigu Kerecis sem varða uppfinningar Guðmundar Fertrams Sigurjónssonar og samstarfsmanna hans í Kerecis. Salan er að fullu leyti skattskyld á Íslandi og eru áætlaðar skattgreiðslur hátt í 40 milljarðar króna. Coloplast hafði lögum samkvæmt heimild til að dreifa skattgreiðslunni yfir allt að sjö ára tímabil en ákvað að nýta hana ekki og mun ganga frá skattgreiðslunni á einu bretti í haust. Sjá einnig Ríkið fær 40 milljarða af til­flutningi hug­verkaréttinda Kerecis Þegar greint var frá því í febrúar sl. að skattgreiðslan yrði innt af hendi í formi eingreiðslu síðar í ár, fjölluðu fjölmiðlar um það að hún myndi miðað við þáverandi áætlanir duga til að koma afkomu ríkissjóðs í plús. Nú virðist sem að ríkissjóður verði engu að síður rekinn með halla. Viðskiptablaðið sendi fjármálaráðuneytinu fyrirspurn um hvort áætlun um afkomu ríkissjóðs í ár innihaldi umrædda skattgreiðslu vegna sölu hugverkaréttinda Kerecis. Ráðuneytið segist almennt ekki geta veitt upplýsingar um skattamál eða fyrirhugaðar skattgreiðslur einstakra skattaðila. „Tekjuáætlun fjárlagafrumvarps fyrir árið 2027 byggist á heildstæðu mati á þróun skattstofna og áætluðum tekjum ríkissjóðs. Upplýsingar um álagningu tekjuskatts lögaðila liggja fyrir að lokinni álagningu í lok október. Að svo stöddu hefur ráðuneytið því ekki aðrar upplýsingar um málið en fram hafa komið opinberlega.“ Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði í viðtali við Vísi í febrúar síðastliðnum að ekki hafi verið gert ráð fyrir tekjunum í fjármálaáætlun. Gera má ráð fyrir að áætlun um hallarekstur ríkissjóðs upp á 67,5 milljarða króna innihaldi því ekki ofangreinda skattgreiðslu vegna sölu hugverkarréttinda Kerecis. Ætla má þó að halli ríkissjóðs í ár verði engu að síður yfir 20 milljarðar króna ef áætlanir ganga eftir.

Share this article