- What: Housing prices in Iceland show a real value decline
- Impact: Reflects broader economic trends in the housing market
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09 prósent á milli mánaða þriðja mánuðinn í röð. Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,25% og hefur því lækkað um 3,2% að raunvirði. „Raunverðslækkunin hefur þó farið minnkandi frá því fyrr á árinu og var 3,46 prósent í júlí. Tólf mánaða raunbreyting íbúðaverðs hefur nú verið neikvæð í þrettán mánuði samfellt,“ segir í frétt á vef HMS. Þegar horft er til undirvísitalna hefur sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkað mest síðustu tólf mánuði, eða um 3,24%. Minnsta hækkunin hefur orðið á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu, þar sem verðið hefur hækkað um 1,19%. Á landsbyggðinni hefur verð á fjölbýli hækkað um 2,89% og sérbýli um 2,63% á sama tímabili. Mynd tekin úr frétt HMS.