Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli júní og júlí, samkvæmt nýbirtum tölum HMS . Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,61% og hefur því lækkað um 3,46% að raunvirði undanfarið ár. HMS bendir á að vísitala íbúðaverðs hafi farið lækkandi að raunvirði frá því í ársbyrjun 2025. „Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan lækkað um 3,46 prósent að raunvirði en tólf mánaða rauntakturinn hefur nú mælst neikvæður tólf mánuði í röð og er enn á niðurleið,“ segir í frétt á vef HMS. „Raunvirði íbúðaverðs mælist nú álíka hátt og í nóvember 2023, þegar það hafði hægt verulega á íbúðaverðshækkunum samhliða skörpum stýrivaxtahækkunum.“ Mynd tekin af vef HMS. Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 4% að raunverði Íbúðaverð hækkaði um 0,63% á milli mánaða á höfuðborgarsvæðinu, þar sem sérbýli hækkaði um 0,79% og fjölbýli hækkaði um 0,45% á milli mánaða. Á sama tíma lækkaði íbúðaverð á landsbyggðinni um 1,19% á milli mánaða, þar sem sérbýli lækkaði um 1,18% og fjölbýli um 1,21%. „Undirvísitalan fyrir fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað minnst af öllum undirvísitölum íbúðaverðs á undanförnum 12 mánuðum, eða um 1% að nafnvirði sem samsvarar um 4% raunverðslækkun. Raunverð fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu mælist nú álíka hátt og haustið 2021.“ Mestar hækkanir hafa orðið á undirvísitölunni fyrir sérbýli á höfuðborgarsvæðinu síðastliðið ár. Vísitalan hefur hækkað um 2,9% að nafnvirði sem samsvarar 2,3% raunverðslækkun. Raunverð sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu mælist nú álíka hátt og í maí árið 2024.