Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Logi: Kaupum auglýsingar af fjölmiðlum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.9.2026 | 11:59 Logi: Kaupum auglýsingar af fjölmiðlum Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi „Algjörlega óþolandi og ólíðandi“ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Undrast röksemdafærslu ráðherra Nær 300 stöðugildi hjá Ríkisútvarpinu Taki yfir skuldabréf vegna skerðingar auglýsingatekna » Fleiri tengdar fréttir Stjórnarráðið hefur ákveðið að beina auglýsingakaupum sínum til fjölmiðla. Þessi ákvörðun er í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla sem kynnt var 19. desember síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins . Fram kemur að Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hafi í nóvember kynnt ríkisstjórninni að ráðuneyti hans hefði ákveðið að kaupa einungis auglýsingar af fjölmiðlum. Í kjölfarið hafi verklagið verið kynnt ráðuneytisstjórum og upplýsingafulltrúum allra ráðuneyta sem hafi tekið jákvætt í erindið og hafi nú tileinkað sér breytt verklag. Þá hefur menningar- nýsköpunar- og háskólaráðuneytið einnig sent stofnunum sínum erindi þar sem vakin er athygli á breyttu verklagi og þær hvattar til að tileinka sér það. Þrátt fyrir að um tilmæli sé að ræða er lögð áhersla á að auglýsingakaup annars staðar en í fjölmiðlum séu ekki í samræmi við fyrrnefnda aðgerðaáætlun og því æskilegt að fyrir slíkum kaupum sé skýr rökstuðningur, að því er segir í tilkynningunni. Frétt af mbl.is 12% af auglýsingatekjum Rúv renni til annarra miðla Stofnanir kaupi áskriftir að fjölmiðlum Þá hvetur ráðuneytið stofnanir jafnframt til þess að kaupa áskriftir að fjölmiðlum til að auka aðgang starfsmanna að fréttum og samfélagsumræðu og stuðla að sjálfbærum rekstri fjölmiðla. „Það skiptir máli að það sé ekki sjálfkrafa fyrsta val að kaupa birtingar á samfélagsmiðlum. Auðvitað geta komið upp tilvik þar sem ekki næst með góðu móti til ákveðins markhóps með birtingum í fjölmiðlum en það er sannarlega ekki alltaf. Því hvet ég sem flesta sem versla birtingar til þess að staldra við og spyrja sig hvort það séu fleiri og mögulega betri leiðir til þess að kaupa auglýsingar og styðja við faglega fjölmiðla. Það sama á við um fréttir – stöldrum við og hugum að því hvaðan þær sannarlega koma. Er fréttin frá ritstýrðum fréttamiðli og unnin af fréttamanni? Eða er fréttin af samfélagsmiðli með óskýran uppruna og án ritstjórnar?,“ er haft eftir Loga í tilkynninguni. Byggir á samráði við fjölmiðla Þá segir að þessi ákvörðun sé liður í fyrrnefndri aðgerðaáætlun sem byggi á viðamiklu samráði við fjölmiðla landsins. „Góður gangur er í framfylgd áætlunarinnar; t.a.m. var frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla samþykkt á Alþingi í vor og hafa reglur um Talsetningar- og textunarsjóð fjölmiðlaveitna og nýjan nýsköpunar- og þróunarsjóð fjölmiðla verið birtar í Stjórnartíðindum. Stefnt er að því að ljúka úthlutunum úr báðum sjóðum fyrir árslok en opið er fyrir umsóknir í Talsetningar- og textunarsjóð. Þá verða frumvörp um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið og hækkun refsiramma höfundalaga lögð fram á Alþingi í haust,“ segir í tilkynningunni. Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi „Algjörlega óþolandi og ólíðandi“ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Undrast röksemdafærslu ráðherra Nær 300 stöðugildi hjá Ríkisútvarpinu Taki yfir skuldabréf vegna skerðingar auglýsingatekna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Innkalla hrísgrjón og fæðubótarefni Kennir leikmönnum Liverpool um Réttað yfir norskum unglingum í Bretlandi Logi: Kaupum auglýsingar af fjölmiðlum „Mörg listaverk eru viðkvæm og umhirða þeirra skiptir máli“ Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stóraukin gjaldtaka í þjóðgörðum Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Tvær þyrlur ræstar út vegna veikinda úti á hafi Íslensk börn einu og hálfu ári eftir á Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Snjallgleraugun gætu orðið að næstu tæknibyltingu Landvörður á Hornströndum í 26 sumur Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Björgunarsveit komin upp við vegg Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Nýjast á mbl.is » Innkalla hrísgrjón og fæðubótarefni Kennir leikmönnum Liverpool um Réttað yfir norskum unglingum í Bretlandi Logi: Kaupum auglýsingar af fjölmiðlum „Mörg listaverk eru viðkvæm og umhirða þeirra skiptir máli“ Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Icelandair vill leggja málið fyrir gerðardóm Fela utanaðkomandi aðila að skapa vinnufrið Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Snjallgleraugun gætu orðið að næstu tæknibyltingu Landvörður á Hornströndum í 26 sumur Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Björgunarsveit komin upp við vegg Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn

Share this article