Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íslandsmeistararnir án fyrirliðans í upphafi móts

Read Full Article →

Íslandsmeistarar karla í körfubolta, Grindavík, verða án fyrirliða síns í fyrstu leikjum Íslandsmótsins. Ólafur Ólafsson meiddist í úrslitaeinvígi deildarinnar gegn Tindastóli í vor. Í viðtali við Vísi segir Ólafur að bein í ristinni hafi farið í tvennt. Slík brot taki lengri tíma að jafna sig en hefðbundin álagsbrot í fæti og gæti hann verið frá til jóla „Ég ætla ekkert að flýta mér og fara of snemma of stað. Þetta er leiðinlegt brot og ég ætla að leyfa því að gróa alveg,“ segir Ólafur við Vísi. Ólafur leiddi Grindavík til titilsins í vor og fékk svo fálkaorðuna frá Forseta Íslands í júní fyrir þjónustu við heimabyggð á erfiðum tímum. Ólafur Ólafsson lyftir Íslandsbikarnum síðastliðið vor.Mummi Lú

Share this article