Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Að laga Ísland að umbúðunum

Read Full Article →

Deila Frumvarp til fjárlaga næsta árs var kynnt í síðustu viku. Eins og svo oft áður í tíð þessarar ríkisstjórnar var mikil áhersla lögð á leiktjöldin á blaðamanna­fundinum, en á honum krotaði forsætis­ráðherra stórt núll á plagg sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hampaði síðan sigri hrósandi yfir því að ríkisstjórninni hefði loks tekist að koma böndum á hallarekstur og skuldasöfnun. Þetta er að minnsta kosti spunaþráðurinn sem ríkisstjórnin vill telja landsmönnum trú um. Nú eru fjárlög í sjálfu sér ekki gildishlaðið plagg og ekki flókið mál að átta sig á því hvaða áhrif þau munu hafa og á hvaða ­stoðum forsendur þeirra hvíla. Fréttaflutningurinn af ­málinu mótaðist svo af þessu öllu saman. Stjórnarliðar lýstu yfir fullnaðar­sigri: sleggjan var munduð og ­langþráður verðstöðugleiki á næsta leiti, sem svo muni leiða til myndarlegra vaxtalækkana. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article